Kvikmynda tónleikar, Sígild og samtímatónlist, Tónlist

Verð
4.900 - 8.600 kr
Næsti viðburður
fimmtudagur 12. nóvember - 19:30
Salur
Eldborg
Kvikmynd Alfreds Hitchcock, Psycho, frá árinu 1960 um örlagaríka heimsókn Marion Crane á Bates-gistihúsið í Kaliforníu er af mörgum talin til bestu bíómynda liðinnar aldar. Kvikmyndin var tilnefnd til fernra Óskarsverðlauna og nýtur enn gríðarlegra vinsælda þrátt fyrir að rúm 65 ár séu liðin frá frumsýningu hennar. Þar skiptir sköpum hin hrollvekjandi tónlist bandaríska tónskáldsins Bernards Herrmann. Hann samdi tónlist við einar sjö kvikmyndir Hitchcocks og er tónlistin við Psycho langþekktust. Hún er einvörðungu skrifuð fyrir strengjahljóðfæri hljómsveitarinnar og eru möguleikar þeirra kannaðir í þaula. Skerandi strengjahljómarnir í hinu fræga sturtu-atriði eiga eftir að fylgja áheyrendum dögum saman í kjölfar tónleikanna!
Ekki missa af Psycho í lifandi flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborg. Myndin er bönnuð áhorfendum yngri en 16 ára.
Hljómsveitarstjóri
Ben Palmer
Psycho
Leikstjóri
Alfred Hitchcock
Tónlist
Bernard Herrmann
Viðburðahaldari
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Miðaverð er sem hér segir
A
8.600 kr.
B
6.900 kr.
C
5.900 kr.
D
4.900 kr.
Dagskrá
fimmtudagur 12. nóvember - 19:30
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn er sérhannaður til tónleikahalds, en hentar einnig vel fyrir ráðstefnur og fyrirlestra.

Næstu viðburðir í Hörpu