Kammertónlist, Klassík, Sígild og samtímatónlist, Sígildir sunnudagar, Tónlist

Verð
4.900 kr
Næsti viðburður
sunnudagur 14. febrúar - 16:00
Salur
Norðurljós
Megas fyrir píanó og strengjakvartett er yfirskrift tónleika sem haldnir verða í Norðurljósum þann 14. febrúar næstkomandi. Hér er um að ræða tónleika með eilítið öðru sniði en við eigum að venjast þegar kemur að tónlist Megasar. Textarnir hans og söngur verða víðsfjarri en í stað þess verður áherslan lögð á tónsmíðarnar sjálfar og þeim leyft að njóta sín. Stundum vill það nefnilega gleymast hvað þær eru miklar perlur út af fyrir sig.
Tónleikarnir sjálfir verða einnig með svolítið sérstöku sniði. Strengjakvartettinn, ekki af lakari taginu, er skipaður af Sigrúnu Eðvaldsdóttur, Auði Hafsteinsdóttur, Þórunni Ósk Marínósdóttur og Bryndísi Höllu Gylfadóttur og mun spila klassískar, formfastar, skrifaðar útsetningar eftir Þórð Magnússon, son Megasar, en Davíð Þór Jónsson píanóleikari mun af sinni alkunnu snilld bæta við útsetningarnar frjálsum spuna, annarri vídd og leiða áhorfendur hvert sem andartakið kallar á.
Tónleikarnir eru fyrstu tónleikarnir Megasi til heiðurs síðan hann lést og eru þeir því einskonar minningartónleikar.
Áætluð lengd er rúm klukkustund, án hlés.
Viðburðahaldari
Þórður Magnússon
Miðaverð er sem hér segir
A
4.900 kr.
A
4.900 kr.
Dagskrá
Þessi einstaki og fallegi salur á annarri hæð Hörpu hentar vel fyrir tónleika, ráðstefnur, sýningar, árshátíðir og hvers kyns mannamót. Norðurljós er hin fullkomna umgjörð og býður upp á fjölbreytta notkunarmöguleika.

Hleður
Næstu viðburðir í Hörpu