Jazz, Jazz og blús, Tónlist

Verð
5.200 kr
Næsti viðburður
miðvikudagur 23. september - 20:00
Salur
Björtuloft
Haukur Gröndal, saxófónn
Ásgeir Ásgeirsson, gítar
Birgir Steinn Theódórsson, bassi
Einar Valur Scheving, trommur
Klassísk jazzhefð með fjórum af fremstu jazzleikurum Íslands koma fram með HG Quartet, undir forystu saxófónleikarans Hauks Gröndal. Í kvartettinum leika með Hauki þeir Ásgeir Ásgeirsson á gítar, Birgir Steinn Theódórsson á bassa og Einar Valur Scheving á trommur. Tónlistin sækir innblástur í gullöld jazzins, tón og stíl hljóðfæraleikara á borð við Lester Young, Charlie Parker, Stan Getz og Zoot Sims. Efnisskráin er samsett úr mörgum af uppáhaldslögum Hauks og sérstaklega útsett fyrir nýja kvartettinn. Góð lög fá notið sín og samspil hljóðfæraleikaranna verður í fyrirrúmi. Þótt allir liðsmenn séu vel þekktir fyrir eigin verkefni og samstarf sín á milli hefur þessi tiltekna hljómsveitarskipan ekki komið mikið saman áður. Það gefur tónleikunum sérstakan blæ – sameiginleg jazzhefð mætir samspili og flæði augnabliksins. Útsetningar Hauks eru unnar með klassíska jazzhefð að leiðarljósi og gefa hverjum hljóðfæraleikara svigrúm til að móta tónlistina með sínum persónulega blæ. Vænta má tónleika þar sem laglínur, sveifla, spuni og samleikur leika aðalhlutverkið.
Viðburðahaldari
Múlinn Jazzklúbbur
Miðaverð er sem hér segir
A
5.200 kr.
Dagskrá
miðvikudagur 23. september - 20:00
Björtuloft eru glæsileg umgjörð fyrir veislur, móttökur, einkasamkvæmi og fundi. Salurinn er á tveimur hæðum með stórbrotnu útsýni yfir borgina.

Hleður
Næstu viðburðir í Hörpu