Rokk og popp, Tónlist

Verð
6.990 - 20.990 kr
Tímabil
22. desember - 23. desember
Salur
Eldborg
Þorláksmessutónleikaröð Bubba Morthens er ein allra langlífasta tónleikahefð í aðdraganda jóla og eru ófáir sem geta ekki hugsað sér aðventuna án þeirra.
Tónleikarnir í ár verða hefðbundnir. Fyrstu Þorláksmessutónleikarnir voru haldnir á Hótel Borg árið 1985. Þótt staðsetning tónleikanna hafi breyst í gegnum tíðina má alltaf stóla á það að Bubbi mæti með gítarinn, perlar sín þekktustu lög á kvöldsins festi og rýnir í samtímann af sinni einstöku snilld.
Uppselt er 23. desember – við bætum við einu kvöldi.
Bubbi snýr aftur í Eldborg og ætlar að loka mögnuðu afmælisári á stórum nótum þriðjudaginn 22. desember kl. 20:00.
Með honum verður stór hluti af hljómsveitinni sem stóð að baki 06.06 afmælistónleikunum – undir stjórn Halldórs Gunnars Fjallabróður. Það stefnir því í alvöru lokakvöld á ári sem hefur verið eitt það stærsta á ferli Bubba.
Eldborg. Stórt band. Bubbi. Eitt kvöld í viðbót.
Almenn miðasala hefst mánudaginn 12. október kl. 10:00.
Hlökkum til að eiga þetta kvöld með ykkur.
Viðburðahaldari
Vinir hallarinnar
Miðaverð er sem hér segir
A
16.990 kr.
B
13.990 kr.
C
9.990 kr.
D
7.990 kr.
X
18.990 kr.
E
6.990 kr.
Gull
20.990 kr.
Dagskrá
þriðjudagur 22. desember - 20:00
miðvikudagur 23. desember - 22:00
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn er sérhannaður til tónleikahalds, en hentar einnig vel fyrir ráðstefnur og fyrirlestra.

Hleður
Næstu viðburðir í Hörpu