Klassík, Sígild og samtímatónlist, Sinfóníuhljómsveit, Tónlist

Verð
0 kr
Næsti viðburður
miðvikudagur 19. ágúst - 12:00
Salur
Eldborg
infóníuhljómsveit Íslands heldur nú í áttunda sinn námskeið í hljómsveitarstjórn en í ár er það Daníel Bjarnason sem leiðbeinir námskeiðinu. Í akademíunni fær ungt og efnilegt tónlistarfólk tækifæri til þess að spreyta sig á stjórnandapallinum og stjórna hljómsveitinni, undir styrkri handleiðslu Daníels. Akademían er fyrst og fremst vettvangur nemenda sem lokið hafa miðprófi hið minnsta í hljóðfæraleik eða söng. Völdum nemendum gefst svo tækifæri til að stjórna Sinfóníuhljómsveit Íslands á opnum hádegistónleikum í lok námskeiðsins.Þetta starf er farið að bera ríkulegan ávöxt og hafa nemendur akademíunnar þegar látið til sín taka á pallinum, bæði hér heima og erlendis.Viðburðurinn er öllum opinn og geta gestir fylgst með þessum hæfileikaríku stjórnendum stíga sín fyrstu skref á pallinum.
Aðgangur er ókeypis. Gengið er inn í Eldborg um inngang 2A.
Viðburðahaldari
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Þessi viðburður er ókeypis
Dagskrá
miðvikudagur 19. ágúst - 12:00
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn er sérhannaður til tónleikahalds, en hentar einnig vel fyrir ráðstefnur og fyrirlestra.

Hleður
Næstu viðburðir í Hörpu