Leikhús

Verð
7.900 kr
Tímabil
9. desember - 20. desember
Salur
Kaldalón
Einn vinsælasti bókaflokkur Íslands verður að leiksýningu.
Einn myrkasti kafli í íslenskri flugsögu.
Þann 15. nóvember 1978 brotlenti flugvél Flugleiða, Leifur Eiríksson, við flugvöllinn í Kólombó á Sri Lanka. Af þeim 262 manns sem voru um borð komust einungis 79 lífs af, sem gerði brotlendinguna að fjórða mesta flugslysi sögunnar á þeim tíma. Af þeim sem komust af voru fimm Íslendingar.
Aðdraganda slyssins, björgunaraðgerðunum og eftirmálunum hafa verið gerð skil í bók Óttars Sveinssonar, Útkall - Leifur Eiríksson brotlendir. Bókin byggir á viðtölum við eftirlifendur slyssins, aðstandendur og aðra flugáhafnarstarfsmenn sem voru á flugvellinum þegar brotlendingin átti sér stað. Nú verður sagan að leiksýningu þar sem fimm leikarar munu setja sig í spor íslensku eftirlifendanna og gera sögu þeirra skil á heiðarlegan, nærgætinn en átakanlegan hátt.
Ef það er eitt sem áföll eins og flugslysið á Sri Lanka hafa sýnt okkur, er að á sorgarstundum eiga Íslendingar eina sál þegar á reynir. Þá eykst samlyndi og styrkur eflist.
Leikgerðin er unnin af Fjölni Gíslasyni, leikara og Magnúsi Thorlacius, leikstjóra. Fjölnir hefur verið áberandi í leikhússenunni síðustu ár en hann hefur farið með eftirminnileg hlutverk m.a. í Kannibalen, Undir, Carmen og í Jónsmessunæturdraumi, svo fátt eitt sé nefnt. Magnús hefur einnig sett mark sitt á leikhússenuna síðustu ár, og lýkur meistaranámi í leikstjórn við LAMDA í London núna í haust. Hann hlaut töluverða athygli fyrir leiksýninguna Skeljar sem sýnd var í Ásmundarsal þarsíðasta vetur sem var tilnefnd til Grímunnar sem leikrit ársins og hefur nú verið gefin út á bók.
—
Leikstjórn: Magnús Thorlacius
Leikgerð: Fjölnir Gíslason og Magnús Thorlacius
Byggt á bók eftir: Óttar Sveinsson
Leikarar: Berglind Halla Elísdóttir, Fjölnir Gíslason, Kristín Eiríksdóttir og Ellen Margrét Bæhrenz
Ljósahönnun: Fjölnir Gíslason og Magnús Thorlacius
Framleiðsla: SPOTLIGHT
Viðburðahaldari
SPOTLIGHT
Miðaverð er sem hér segir
A
7.900 kr.
Dagskrá
miðvikudagur 9. desember - 20:00
fimmtudagur 10. desember - 20:00
sunnudagur 13. desember - 20:00
fimmtudagur 17. desember - 20:00
föstudagur 18. desember - 20:00
Kaldalón er salur staðsettur á fyrstu hæð Hörpu, norðan megin í húsinu. Hann hentar mjög vel fyrir allar tegundir tónleika, leiksýningar, ráðstefnur, fundi og listviðburði.

Næstu viðburðir í Hörpu