Jazz og blús, Tónlist

Salur
Björtuloft
Haukur Gröndal, saxófónn
Birgir Steinn Theódórsson, bassi
Einar Valur Scheving, trommur og slagverk
Saxófónleikarinn Haukur Gröndal hefur verið áberandi í íslensku jazzlífi í yfir þrjá áratugi. Á þessum tónleikum mun tríóið flytja valin lög sem meðlimir sveitarinnar halda sérstaklega upp á, í opnum og skemmtilegum útsetningum. Auk Hauks skipa tríóið Birgir Steinn Theódórsson á bassa og Einar Valur Scheving á trommur og slagverk. Fyrir áhugafólk um jazztónlist og forvitna hlustendur er þetta áhugaverð samsetning þriggja reyndra tónlistarmanna úr fremstu röð.
Viðburðahaldari
Múlinn Jazzklúbbur
Björtuloft eru glæsileg umgjörð fyrir veislur, móttökur, einkasamkvæmi og fundi. Salurinn er á tveimur hæðum með stórbrotnu útsýni yfir borgina.

Hleður
Næstu viðburðir í Hörpu