Sígild og samtímatónlist, Tónlist

Event poster

Prómeþeifur - Sinfón­íu­hljóm­sveit Íslands

Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00

Verð

3.100 - 11.500 kr

Næsti viðburður

fimmtudagur 11. febrúar - 19:30

Salur

Eldborg

Listrænn stjórnandi og aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Barbara Hannigan færir okkur tónleika sem hjúpaðir eru dulúð og sækja innblástur í fornar goðsagnir. Staðarlistamaðurinn, Bertrand Chamayou píanóleikari og Rafael Adobas Bayog, nýráðinn leiðari flautudeildar hljómsveitarinnar, eru í einleikshlutverkum kvöldsins. Einn af meisturum litbrigðanna, bandaríska tónskáldið George Crumb, dregur upp draugalega mynd af ímynduðu landslagi þar sem andar fortíðar eru á sveimi. Dreymandi einleikur Debussys um grísku gyðjuna Syrinx leiðir okkur svo inn í tónaljóðið Luonnotar fyrir sópran og hljómsveit eftir finnska tónskáldið Jean Sibelius. Þar flytur Hannigan á ljóðrænan hátt söguna af því hvernig Luonnotar, gyðja lofts og hafs, skóp heiminn úr brotum af andareggi. Gríska sagan um Prómeþeif, sem stal eldinum frá guðunum til að færa mönnunum í formi visku og þekkingar hefur verið tónskáldum innblástur um aldir. Rússneska tónskáldið Aleksandr Skrjabín lét ekki sitt eftir liggja og skrifaði tónaljóðið Ljóð eldsins fyrir píanó og hljómsveit þar sem samspil lita, ljóss og skugga skapar einstaka stemningu í draumkenndri tónlistinni. Einnig hljómar verkið Aequora eftir Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur sem sækir innblástur í hafdjúpin og lífríki þeirra.

Hljómsveitarstjóri og einsöngvari
Barbara Hannigan

Einleikarar
Bertrand Chamayou 
Rafael Adobas Bayog 

Ljósahönnun
Fabiana Piccioli 

Efnisskrá
George Crumb A Haunted Landscape
Claude Debussy Syrinx
Jean Sibelius Luonnotar
Maria Huld Markan Sigfúsdóttir Aequora
Aleksandr Skrjabín Prómeþeifur, Ljóð eldsins


Viðburðahaldari

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Miðaverð er sem hér segir

A

9.300 kr.

B

7.100 kr.

C

5.100 kr.

D

3.100 kr.

X

11.500 kr.

Dagskrá

fimmtudagur 11. febrúar - 19:30

Eldborg

Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn er sérhannaður til tónleikahalds, en hentar einnig vel fyrir ráðstefnur og fyrirlestra.

a large empty auditorium with red seats and a stage .