Jazzhátíð Reykjavíkur, ljósmyndir, Menningarnótt, Reykjavík Culture Night, Reykjavík Jazz Festival
Verð
0 kr
Næsti viðburður
laugardagur 23. ágúst - 13:00
Salur
Framhús
Ljósmyndasýningin Jazzhátíð Reykjavíkur í myndum verður á jarðhæð Hörpu, dagana 23.-31. ágúst. Þar sýnir ljósmyndarinn Hans Vera ljósmyndir sem hann hefur tekið á hátíðinni allt frá árinu 2009.
Hans Vera er fæddur í Belgíu árið 1967 og hefur verið búsettur á Íslandi frá árinu 1999. Hans hefur frá unga aldri haft mikinn áhuga á tónlist og tónleikum – einkum jazzi. Árið 2009 sá hann að hægt væri að skrá sig sem sjálfboðaliða á Jazzhátíð Reykjavíkur og merkja við ljósmyndun. Það varð upphafið að nánu sambandi hans við íslensku jazzsenuna, sem hann hefur myndað
af ástríðu allar götur síðan, sérstaklega á hátíðinni sjálfri.
Áhuginn á ljósmyndun kviknaði árið 2003 þegar Hans keypti sína fyrstu stafrænu myndavél. Upphaflega var landslag hans helsta myndefni, en í dag fangar hann fjölbreyttar senur: landslag, viðburði, götulíf og portrett.
Myndlist hefur alltaf verið honum hugleikin – hann nam hana um árabil í Belgíu og hefur sérstakt yndi af blýantsteikningum, sem hann stundar enn af kappi.
Viðburðahaldari
Harpa
Miðaverð er sem hér segir
A
0 kr.
Dagskrá
laugardagur 23. ágúst - 13:00
eventTranslations.event-showcase-framhús