23. febrúar 2024

Sígildir sunnudagar 2024-2025

Harpa auglýsir eftir þátttakendum í tónleikaröðina

Sígildir umsókn

Harpa tónlistar-og ráðstefnuhús auglýsir eftir þátttakendum í tónleikaröðina Sígildir sunnudagar veturinn 2024-2025.

Sígildir sunnudagar er regnhlífarhugtak yfir klassískar tónleikaraðir og staka viðburði í Norðurljósum/Kaldalóni á sunnudögum kl 16:00 frá september 2024 og fram í miðjan maí 2025. Með röðinni gefst áheyrendum kostur á fyrsta flokks kammertónleikum vikulega í Hörpu. Lögð er áhersla á fjölbreytt úrval tónleika með sígildri söng- og hljóðfæratónlist.

Sem fyrr er skipulag tónleika í höndum tónlistarhópanna sjálfra en Harpa veitir röðinni stuðning með afslætti á salarleigu, kynningu og aðstoð við markaðssetningu á íslensku og ensku með það að markmiði að stækka áheyrendahóp klassískra kammertónleika.

Umsóknarfrestur er til og með 27. mars 2024.

[@portabletext/react] Unknown block type "span", specify a component for it in the `components.types` prop

Fréttir