1. júní 2023
38 milljónir söfnuðust á neyðartónleikum Vaknaðu!
Samstaða einkenndi stemninguna í Eldborg á meðan neyðartónleikarnir Vaknaðu! fóru fram, en tónleikarnir voru samtímis sendir út í sjónvarpi RÚV. Þau Ragga Gísla, Bubbi, Nanna, Jónas Sig, Systur, Herra Hnetusmjör, Mugison, Emmsjé Gauti, Una Torfa, Elín Hall, Ólafur Bjarki, Ellen Kristjáns og fjöldinn allur af öðru frábæru tónlistarfólki ljáði málstaðnum krafta sína.

Tilgangur tónleikanna var tvíþættur, að safna fyrir skaðaminnkunarverkefni Rauða krossins, ber þar helst að nefna Frú Ragnheiði, auk þess að vekja fólk til meðvitundar um þá skelfilegu ógn sem stafar af rísandi ópíóíðafaraldri hérlendis.
Eina leiðin er leið kærleikans
Kynnar kvöldsins, þau Gunni Hilmars og Sigga Eyþórs, fluttu skýr skilaboð um það hvernig núverandi kerfi sem byggir á hörku og refsingum hefur ekki skilað árangri og mun ekki skila árangri, heldur þurfi að endurskoða aðferðirnar og nálgast málefnið út frá skaðaminnkandi hugmyndafræði. Tónlistarfólkið sem fram kom var á sama máli, en Jónas Sig kom hugmyndafræðinni svo fallega í orð þegar hann sagði: „…eina leiðin er leið kærleikans og að mæta hvort öðru með samkennd. Að sýna aðstæðum fólks skilning, hlúa að hvert öðru þegar við mögulega getum með nálgunum eins og skaðaminnkun sem byggja á hlýju og skilningi.“
Inn á milli tónlistaratriða voru sýnd innslög með viðtölum við aðstandendur, viðbragðsaðila og fyrrum neytanda ásamt hvatningu frá þjóðþekktum einstaklingum.
Nú þegar hafa safnast tæplega fjörutíu milljónir króna, en söfnunin er enn í fullum gangi og enn hægt að styrkja hana á heimasíðu Rauða krossins
Það var tónlistarkonan Ellen Kristjánsdóttir sem stóð fyrir tónleikunum í samstarfi við Hörpu, RÚV og fleiri.
Upptöku frá tónleikunum er hægt að nálgast hér. Hér má kynna sér Frú Ragnheiði og skaðaminnkunar starf Rauða krossins
Ljósmyndir: Spessi.


















Fréttir
4. september 2023
Fjölskyldudagskrá í Hörpu
Aðgengileg öllum börnum, gestum að kostnaðarlausu.
1. september 2023
Grasrótin blómstrar í Hörpu!
Upprásin, tónleikaröð fyrir grasrót íslensks tónlistarlífs hefst þriðjudaginn 5. september
30. ágúst 2023
Verðlaunaafhending - Mín Harpa, ljósmyndasamkeppni
Við óskum verðlaunahöfum í Mín Harpa - ljósmyndasamkeppni fyrir ungt fólk innilega til hamingju!