börn og fjölskyldan, tónlist

Fjöl­skyldu­dag­skrá Hörpu: Skoð­un­ar­ferð og sögu­stund með Maxímús

Verð

-

Næsti viðburður

sunnudagur 26. maí - 11:00

Salur

Harpa

Ingibjörg Fríða leiðir á skoðunarferð fyrir yngstu gesti Hörpu í fylgd fullorðinna í leit að Maxímús Músíkús. Við förum um ýmsa sali, króka og kima Hörpu og veltum fyrir okkur hvort þeir séu ákjósanlegir staðir fyrir litla mús að búa á – Maxímús Músíkús er svo sannarlega langminnsti íbúi sem skráður er til heimilis í Hörpu.

Skoðunarferðin endar í Kaldalóni í sögustund með Maxa kl. 11:30.

Í sögustund með Maxa fáum við að fylgjast með tónlistarævintýrum hinnar ástsælu músar Maxímúsar Músíkúsar. Steinunn Arinbjarnardóttir les söguna Maxímús Músíkús kætist í kór úr hinum vinsæla bókaflokki Hallfríðar Ólafsdóttur og Þórarins Más Baldurssonar við tónlistarundirleik og myndasýningu af tjaldi.

Athugið að fjöldi þátttakenda er takmarkaður í hverja skoðunarferð, fullorðinn þarf að fylgja hverju barni en þó ekki fleiri en tveir.

Hægt er að bóka miða í skoðunarferð og sögustund en líka eingöngu í sögustundina.  

Aðgangur er ókeypis en bóka þarf miða hér þar sem fjöldi þátttakenda er takmarkaður. Aðeins er bókað fyrir hvert barn, en tveir fullorðnir mega fylgja með. Opnað er fyrir bókanir fimm dögum fyrir auglýsta skoðunarferð. 

Aðgengi
Viðburðurinn fer fram á íslensku.  
Skoðunarferð fer fram í opnum rýmum og sölum Hörpu þar sem gert er ráð fyrir aðgengi að lyftum gesti sem þess óska. Í sögustund (Kaldalóni) eru hjólastólastæði.
Nánari upplýsingar um heimsóknir í Hörpu og aðgengismál má finna hér.

Við viljum upplýsa gesti um að ljósmyndari á vegum Hörpu gæti verið viðstaddur viðburðinn. Ef foreldrar eða forráðamenn vilja ekki að myndir af börnum þeirra birtist í umfjöllun um viðburðinn á miðlum Hörpu þá biðjum við ykkur vinsamlegast um að láta starfsfólk eða ljósmyndarann vita á staðnum eða í gegnum netfangið markadsdeild@harpa.is.


Viðburðahaldari

Harpa

Miðaverð er sem hér segir:

A

-

Dagskrá

sunnudagur 26. maí - 11:00