Jazz og blús, Tónlist

Verð
5.200 kr
Næsti viðburður
miðvikudagur 4. nóvember - 20:00
Salur
Björtuloft
Andrés Þór Gunnlaugsson, gítar
Nico Moreux, bassi
Magnús Trygvason Eliassen, trommur
Á tónleikunum verður flutt efni af nýjustu plötu tríósins, Relocate. Platan kom út um miðjan ágúst hjá norsku plötuútgáfunni Losen Records. Tríóið hefur leikið saman um árabil og myndað sterka heild þar sem samspil, spuni og opið rými skipa stóran sess.
Relocate hefur að geyma nýja tónlist eftir Andrés Þór með áherslu á samspili tónsmíða og spuna. Tónlistin sækir í fjölbreyttan orðaforða djassins en gefur jafnframt hljóðfæraleikurunum mikið rými til að bregðast hver við öðrum og leyfa tónlistinni að þróast í rauntíma.
Á tónleikunum verður platan í forgrunni, ásamt öðru efni úr katalóg tríósins. Þar má búast við lifandi og kraftmiklum flutningi þar sem tónsmíðarnar taka á sig nýja mynd.
Viðburðahaldari
Múlinn Jazzklúbbur
Miðaverð er sem hér segir
A
5.200 kr.
A
5.200 kr.
Dagskrá
Björtuloft eru glæsileg umgjörð fyrir veislur, móttökur, einkasamkvæmi og fundi. Salurinn er á tveimur hæðum með stórbrotnu útsýni yfir borgina.

Hleður
Næstu viðburðir í Hörpu