Klassík, Sígild og samtímatónlist, Sígildir sunnudagar, Tónlist

Verð
3.500 - 4.900 kr
Næsti viðburður
sunnudagur 24. janúar - 16:00
Salur
Norðurljós
Trio JAM
María Qing Sigríðardóttir, sellóleikari
Alice Compagnon, fiðluleikari og söngkona
Jonathan Hanke, píanóleikari
Tríó JAM hefur starfað saman frá árinu 2023 þegar það kynntist í gegnum nám sitt við Tónlistarháskólann í Stuttgart, Þýskalandi. Síðan þá hefur hópurinn komið fram á tónleikum í Þýskalandi og Frakklandi og hefur fengið jákvæðar viðtökur fyrir óhefðbundna nálgun sína og samspil. Sindelfinger Zeitung/Böblinger Zeitung lýsti listrænni nálgun tríósins sem „algerlega óhefðbundinni“ og samspilinu sem „fullkomnu jafnvægi og samræmdu
samspili sem virðist hvorki þvingað né tilbúið“.
Markmið hópsins er að skapa lifandi og aðgengilega tónlistarupplifun sem brýtur upp hefðbundnar hugmyndir um sígilda tónlist og gefur áheyrendum tækifæri til að nálgast hana á nýjan hátt. Með frásögn, söng ogspunaleik leitast tríóið við að skapa persónulegt og lifandi tónleikaform.
Meðal verka á tónleikunum „Kaffi Músík" eru Árstíðir Piazzolla, þar sem hinn svipmikli argentínski tangó mætir sígildri tónlist og frelsi til spuna. Þýska tónskáldið Florian Willeitner sameinar hins vegar hefðbundið form kammertónlistar við líflegan, grípandi takt og samtímatónlist í Píanótríói nr. 2.
Titilverk tónleikanna er Kaffi Músík eftir Paul Schoenfield, gamansamt og líflegt verk sem fangar andrúmsloft iðandi götukaffihúsa. Auk þess flytur hópurinn þekkt sönglög tengd árstíðunum frá heimalöndum sínum í eigin jazz-útsetningum, sem og verk eftir þýska tónskáldið Peter Ludwig sem auðga andrúmsloft tónleikanna enn frekar.
https://www.instagram.com/trio._.jam
https://www.facebook.com/tri0jam/
Áætluð lengd tónleika: ein og hálf klukkustund með hléi.
Viðburðahaldari
Trio JAM
Miðaverð er sem hér segir
A
4.900 kr.
A
3.500 kr.
Dagskrá
Þessi einstaki og fallegi salur á annarri hæð Hörpu hentar vel fyrir tónleika, ráðstefnur, sýningar, árshátíðir og hvers kyns mannamót. Norðurljós er hin fullkomna umgjörð og býður upp á fjölbreytta notkunarmöguleika.

Hleður
Næstu viðburðir í Hörpu