DagskráDagskráDagskráDagskráDagskráDagskrá
Tónleikar — Ráðstefnur — Fundir — Veislur — Salir og rými — Viðburðahaldarar tónlist
⎯ Tónleikar⎯ Ráðstefnur⎯ Fundir⎯ Veislur⎯ Salir og rými⎯ Viðburðahaldarar tónlist
Um Hörpu — Græn stefna — Styrkir til tónleikahalds — Póstlisti
⎯ Um Hörpu⎯ Græn stefna⎯ Styrkir til tónleikahalds⎯ Póstlisti
Heimsókn í HörpuHeimsókn í HörpuHeimsókn í HörpuHeimsókn í HörpuHeimsókn í HörpuHeimsókn í HörpuBóka fundarherbergiBóka fundarherbergiBóka fundarherbergiBóka fundarherbergiBóka fundarherbergiBóka fundarherbergi
LeitaLeitaLeita
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
  • Harpa

  • Opnunartímar

  • Austurbakka 2, 101 Reykjavík

  • Sími: 528 5000

  • Miðasala: 528 5050

  • harpa@harpa.is

  • Skráning á póstlista

  • Sækja um starf

  • Íbúar

    • Sinfóníuhljómsveit Íslands
    • Stórsveit Reykjavíkur
    • Maxímús Músíkús
  • Fræðsla

    • Persónuverndarstefna
    • Jafnlaunastefna
    • Miðasöluskilmálar
    • Fyrirvari vegna tölvupósts
    • Vafrakökur
  • Vottanir & viðurkenningar

  • Jafnlaunavottun
  • Jafnvægisvogin
  • Svansvottun
  • Tripadvisor viðurkenningar
  • Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
  • Youtube
  • LinkedIn
FacebookInstagramYoutubeLinkedIn
EnglishEnglishEnglish

Kammertónlist, Klassík, Sígild og samtímatónlist, Tónlist

Myndefni

Event poster

Vættir og óvættir - Seigla 2026

Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða

Verð

4.500 kr

Næsti viðburður

föstudagur 7. ágúst - 18:00

Salur

Norðurljós

Þrjár raddir fléttast saman á opnunartónleikum Seiglu og kanna goðsagnir náttúrunnar. Söngkonurnar Harpa Ósk Björnsdóttir, Kristín Einarsdóttir Mäntylä og Sophie Kidwell, ásamt Elísabet Waage á hörpu og Matthildi Önnu Gísladóttur á píanó, leiða saman óperu, sönglög og þjóðlagaarf frá ýmsum löndum Evrópu. Tónlistin ferðast á milli áa, skóga og yfirnáttúrulegra vera og rekur sögur sem hafa streymt um evrópska menningu um aldir.

Efnisskráin hefst í ríki vatnsins, þar sem goðsagnir og náttúra mætast. Rínarmeyjar Richards Wagners úr Das Rheingold gæta geislandi fjársjóðs undir yfirborði árinnar. Í Rusölku eftir Antonín Dvořák kalla vatnadísir úr djúpinu, en hinn frægi Söngur til tunglsins tjáir söknuð og undrun næturhiminsins. Lorelei eftir Clöru Schumann, innblásið af hinni goðsagnakenndu sírenu Rínar, og The Seal Man eftir Rebeccu Clarke, byggt á keltneskum þjóðsögum um selkíur, halda áfram þessari könnun á töfrandi heimum vatnsins.

Frá vatninu liggur ferðin inn í skóginn, stað umbreytinga og dulinnar lífsorku. Í Hans og Grétu villast börnin inn í skóginn þar sem þau mæta norninni. Í óperunni The Cunning Little Vixen eftir Leoš Janáček syngja tveir refir leikandi dúett sem fangar lífskraft og frelsi skógarins. Waldseligkeit eftir Richard Strauss býður svo upp á ljóðræna sýn á kyrrláta töfra náttúrunnar.

Flytjendur
Leiðir Kristínar Einarsdóttur Mäntylä sóprans, Hörpu Óskar Björnsdóttur sóprans og Sophie Kidwell mezzósóprans hafa legið saman margsinnis í gegnum árin. Harpa og Kristín ólust upp við að syngja saman í kórum Langholtskirkju í Reykjavík og héldu síðar áfram námi við Söngskólann í Reykjavík og Tónlistarháskólann „Felix Mendelssohn Bartholdy“ í Leipzig. Kristín og Sophie stigu fyrst saman á svið á Schlossfestspiele Ettlingen í uppfærslu á Carmen, þar sem Sophie söng titilhlutverkið og Kristín fór með hlutverk Mercédès.

Harpa og Sophie störfuðu síðar saman í eitt leikár við Theater Basel sem meðlimir OperAvenir, óperustúdíós leikhússins. Þar komu þær fram í fjölmörgum sýningum, meðal annars Das Rheingold, Götterdämmerung, The Cunning Little Vixen, Into the Woods og Carmen. Á þeim tíma kom Kristín einnig reglulega til Basel-svæðisins til að syngja í uppfærslum á Parsifal.

Þessir tónleikar marka í fyrsta sinn sem þær koma allar þrjár fram saman á sviði. Með þeim koma fram Matthildur Anna Gísladóttir píanóleikari og Elísabet Waage hörpuleikari, sem leiða áheyrendur með þeim inn í heim vatns, skógar og dulrænna vera.

Lengd: 75 mínútur, án hlés.

Almennt verð: 4.500kr
Verð fyrir nema, meðlimi Íslenska Schumannfélagsins og tekjulága: 2.500kr í miðasölu Hörpu.

Spjall og drykkir með flytjendum
Að opnunartónleikum loknum bjóðum við gestum að staldra við og hitta flytjendur Seiglu yfir drykk og spjalli.

Þar gefst tækifæri til að halda tónlistinni gangandi í samtali: að ræða verkin, hugmyndirnar á bak við þau og upplifun kvöldsins í afslöppuðu og notalegu andrúmslofti. Á barnum í Hörpuhorni verður hægt að kaupa drykki og léttar veitingar.

–

Hátíðardagskrá Seiglu, upplýsingar um flytjendur og aðra viðburði má finna á www.seiglafestival.com og í hátíðartímaritinu Seiglazine.

Harpa er sérstakur styrktaraðili Seiglu 2026. Tónlistarhátíðin Seigla er einnig styrkt af Tónlistarsjóði, Styrktarsjóði SUT og Ruthar Hermanns, Ýli, Menningarsjóði FÍH, Listaháskóla Íslands og Hollvinum Seiglu.

Viðburðahaldari

Seigla

Miðaverð er sem hér segir

A

4.500 kr.

A

4.500 kr.

Dagskrá

föstudagur 7. ágúst - 18:00

Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða

Norðurljós

Þessi einstaki og fallegi salur á annarri hæð Hörpu hentar vel fyrir tónleika, ráðstefnur, sýningar, árshátíðir og hvers kyns mannamót. Norðurljós er hin fullkomna umgjörð og býður upp á fjölbreytta notkunarmöguleika.

a large auditorium filled with rows of chairs and purple lights .

Hleður

Næstu viðburðir í Hörpu

Sjá alla viðburði

The Volcano Express

Sýningar á 15 mínútna fresti

Áskriftasala Sinfóníuhljómsveitar Íslands

Tryggðu þér áskriftarkort sinfóníunnar

Skoðunarferð Hörpu 2026

36 sýningar

Hádegistónleikar í Eldborg

4 sýningar

Velkomin heim | María Sól Ingólfsdóttir

26. júlí 2026, 16:00

Orkester Norden á Íslandi

27. júlí 2026, 19:30

Kvartett Sigurðar Flosasonar - Múlinn Jazzklúbbur

2 sýningar

Tónleikar japanska sjálfsvarnarflotans (JMSDF) til heiðurs vináttu Japans og Íslands

29. júlí 2026, 13:30

David Byrne í Eldborg

29. júlí 2026, 20:00

How to become Icelandic in 60 minutes

11 sýningar