Börn og Fjölskyldan, Fjölskyldudagskrá Hörpu, Myrkir músíkdagar, Tónlist

Event poster

Fjöl­skyldu­dag­skrá Hörpu: Hljóðbað

Verð

0 kr

Næsti viðburður

sunnudagur 1. febrúar - 12:00

Salur

Fimmund, 5.hæð

Hljóðbað í Hörpu

Margar fjölskyldur hafa það fyrir sið að fara í sund á sunnudögum en nú gefst þeim tækifæri til að breyta svolítið til og skella sér í hljóðbað í Hörpu!

Sunnudaginn 1. febrúar kl. 12:00–14:00 býður Fjölskyldudagskrá Hörpu í samvinnu við Myrka músíkdaga upp á opna tónlistarsmiðju fyrir börn og fjölskyldur. Þar fá börn og fullorðnir tækifæri til að baða sig í tónlist, leika sér með hljóð og tóna og prófa fjölbreyttar leiðir til að skapa og upplifa hljóð – allt á sínum eigin forsendum.

Á staðnum verður Þykjó með spennandi hljóðfærasmiðju þar sem gestir geta prófað glæný hljóðfæri. Vala Gestsdóttir, tónlistarkona og tónheilari, býður upp á hljóðbað með gongi og kristalskálum sem bæði er hægt að hlusta á og prófa. Steinunn Eldflaug opnar dyr að töfraheimi raftónlistarinnar og kynnir ýmsar græjur sem gestir mega skoða og leika sér með.

Hljóðbað er fyrir alla fjölskylduna og gestir mega koma og fara á meðan á viðburðinum stendur, eins og hverjum og einum hentar. Hér fá fjölskyldur að upplifa, kanna og prófa tónlist og hljóð á eigin forsendum í öruggu og skapandi umhverfi.

Viðburðahaldari

Harpa

Þessi viðburður er ókeypis

Dagskrá

sunnudagur 1. febrúar - 12:00

Næstu viðburðir í Hörpu