Fjölskyldudagskrá Hörpu, Menningarnótt, Ókeypis viðburður

Event poster

Dýratónar | Harpa á Menn­ing­arnótt

Verð

0 kr

Næsti viðburður

laugardagur 23. ágúst - 13:00

Salur

Harpa

Á Menningarnótt bjóða ÞYKJÓ og tónlistarkonan Sóley Stefánsdóttir börnum og fjölskyldum að kanna undraverðan heim dýratóna með sér. Viðburðurinn fer fram í Vísu og Stemmu, á jarðhæð Hörpu. 

Hvar: Í Vísu og Stemmu
Hvenær: 23. ágúst frá 13 - 17
Fyrir hverja: Börn og fjölskyldur
Gestir geta notið viðburðarins óháð móðurmáli
Aðgangur ókeypis

Viðburðurinn er liður í dagskrá Hörpu á Menningarnótt.

---

Lokið augunum og ímyndið ykkur að þið liggið úti í grænu grasi. Sólin skín á andlitið og fuglarnir tísta. Lóan syngur dirrindí, Krumminn krunkar og Hrossagaukurinn stingur sér niður í háloftunum.   Krybbur dansa á milli stráa. Humlurnar flögra á milli blóma. Hlý golan leikur um okkur. Við setjumst upp og horfum út á hafið. Heyriði hvalina syngja?  

Má bjóða ykkur að spila á fuglahljóðin, búa til takta úr engisprettum og heyra hvernig hvalir hljóma ofan í sjónum? Eða viljið þið jafnvel koma inn og slaka á í fallegum hljóðheimi dýra og barna?

Komið og takið þátt í dýratónum, þar sem fuglar, skordýr, hvalir og börn sameinast.

Viðburðurinn fer fram í Vísu og Stemmu á jarðhæð Hörpu og er samstarfsverkefni við ÞYKJÓ, þverfaglegt verkefni á sviði upplifunarhönnunar fyrir börn.

Aðgangur ókeypis - skráning óþörf.

-

Sóley Stefánsdóttir stundaði nám í píanóleik frá unga aldri. Hún útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2010 þar sem hún lærði nýmiðlatónsmíðar. Hún hefur gefið út fjórar breiðskífur ásamt nokkrum stuttskífum. Hún hefur flutt tónlist sína á tónleikum um allan heim og  og samið tónlist og hljóðmyndir fyrir leikhús. Sóley hefur hlotið Íslensku tónlistarverðlaunin og Kraumsverðlaunin og hlaut árið 2022 tilnefningu til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs fyrir plötuna Mother Melancholia (2021).

Viðburðahaldari

Harpa

Miðaverð er sem hér segir

A

0 kr.

Dagskrá

laugardagur 23. ágúst - 13:00

Næstu viðburðir í Harpa