Fjölskyldudagskrá Hörpu, Menningarnótt, Ókeypis viðburður, Smiðjur

Event poster

Báta­smiðja Memmm á Hörpu­torgi | Harpa á Menn­ing­arnótt

Verð

0 kr

Næsti viðburður

laugardagur 23. ágúst - 13:00

Salur

Hörputorg

Memmm kemur sér fyrir á Hörputorgi á Menningarnótt og býður börnum, fjölskyldum og einstaklingum að smíða sér báta og skip úr opnum efnivið. Í Memmmþorpinu góða er líka hægt að ganga á stultum, blása sápukúlur, sulla í vatni og mála sig í framan. Nýjum bátum og skipum er svo hægt að sigla á tjörnunum fyrir framan Hörpu og Landsbankann.

Hvar: Á Hörputorgi
Hvenær: 23. ágúst frá 13 - 17
Fyrir hverja: Allar kynslóðir
Gestir geta notið viðburðarins óháð móðurmáli
Aðgangur ókeypis

Viðburðurinn er liður í dagskrá Menningarnætur á Hörputorgi sem er í boði Hörpu, Landsbankans og Hafnartorgs.

--

Memmm hannar og heldur viðburði sem stuðla að nærandi samveru fyrir alla fjölskylduna. Áhersla er lögð á leik, sköpun, flæði og tengingu við náttúru og vísindi. Viðburðir Memmm geta ýmist verið innandyra eða úti við og markmiðið er ávallt að hvetja til þátttöku allra. Memmm samanstendur af fagfólki sem hefur áhuga á velferð fjölskyldna á Íslandi.


Viðburðahaldari

Harpa

Miðaverð er sem hér segir

A

0 kr.

Dagskrá

laugardagur 23. ágúst - 13:00

eventTranslations.event-showcase-hörputorg