ráðstefna
Velsældarþing
Verð
14.500 kr
Næsti viðburður
þriðjudagur 11. júní - 13:00
Salur
Silfurberg
Wellbeing Economy Forum, Velsældarþing, er alþjóðleg ráðstefna sem
verður haldin á Íslandi nú annað árið í röð dagana 11. og 12. júní 2024.
Þingið fer fram í Hörpu og er
haldið af Embætti Landlæknis í samstarfi við forsætisráðuneytið og
heilbrigðisráðuneytið með stuðningi frá Heilbrigðisáætlun Evrópusambandsins.
Markmið Wellbeing Economy Forum: Er að skapa vettvang þverfaglegra
umræðna þar sem megináherslan er á að skapa grundvöll fyrir sjálfbært
velsældarhagkerfi til framtíðar.
Áherslur Velsældarþingsins eru í samræmi við
áherslur Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun (SDG). Til að ná
árangri þá er lögð rík áhersla á þverfaglegt samstarf til að móta heildræna
nálgun til að takast á við fjölbreyttar áskoranir okkar tíma.
Allar frekari upplýsingar má finna á
wellbeingeconomyforum.is
Viðburðahaldari
Forsætisráðuneytið og Embætti landlæknis í samstarfi við fleiri aðila.
Miðaverð er sem hér segir:
A
14.500 kr.
Dagskrá
Silfurberg
Silfurberg er helsti ráðstefnusalur Hörpu og er tilvalinn fyrir hvers kyns viðburði, veislur, sýningar eða tónleika.
Hápunktar í Hörpu