Menningarnótt

15 ár af tónlist, menn­ingu og ógleym­an­legum augna­blikum

A large band in blue uniforms holds instruments while colorful confetti falls around them.

Harpa fagnar 15 ára afmæli sínu á Menningarnótt og býður af því tilefni upp á veglega viðburðadagskrá frá kl. 12:00. Dagskráin teygir sig um allt hús og út á Hörputorg en alls verða um 40 fjölbreyttir viðburðir í boði fyrir unga sem aldna. Lokahljómurinn verður sleginn upp úr klukkan 18 þegar Ragnheiður Gröndal og karlakórinn Fóstbræður leiða samsöng gesta í alrými Hörpu.

Fjölbreytt og glæsileg tónlistardagskrá

Tónlistin skipar að sjálfsögðu veglegan sess í dagskrá Menningarnætur í Hörpu og fjölbreytnin ræður þar ríkjum. Gestir geta dillað sér við sjóðheita salsatónlist og stórsveitarsveiflu, drukkið í sig tregablandinn blús og hlýtt á litskrúðuga kórtónlist og kammermúsík svo fátt eitt sé nefnt. Á meðal flytjenda eru kórarnir Fóstbræður og Huldur, Stórsveit Reykjavíkur ásamt Kristjönu Stefánsdóttur og salsasveitin Barrio 27.

Blúsfélag Reykjavíkur gengst fyrir glæsilegri blúshátíð í Flóa og í Kaldalóni verður bæði boðið upp á færeyska tónlistarveislu og einstaka kórtónleika þar sem trommukór, tölvukór og flautukórinn viibra þenja út kórahugtakið.

Sólmyrkvaleikar í tónum og tali

Sinfóníuhljómsveit Íslands býður til glæsilegrar Sólmyrkvahátíðar í Eldborg ásamt hinum eina sanna Stjörnu-Sævari. Þar verða sól og máni í aðalhlutverki í tali og tónum og ekki er ósennilegt að nýafstaðinn almyrkva á sólu beri á góma. Aðgangur á tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands er ókeypis og hægt er að sækja miða á sinfonia.is og í miðasölu Hörpu á tónleikadegi frá kl. 10:00.

Sólmyrkvinn svífur einnig yfir vötnum á Sólmyrkvaleikum í Norðurljósum þar sem Krakkakór ÞYKJÓ ásamt hljómsveit flytja glæný lög og ljóð eftir börn frá gervöllum Vestfjörðum. Öll eru lögin innblásin af „stystu nótt í heimi" en kynnir verður tónlistar- og dagskrárgerðarkonan Ingibjörg Fríða sem mun gægjast í sína sívinsælu og fróðlegu Þjóðsögukistu. ÞYKJÓ töfrar fram skuggaleikhús við tónlist barnanna og einnig verða sýndar stuttmyndir eftir vestfirsk börn sem hverfast um náttúruundrið mikla á himni.

Sólmyrkvaleikar fara fram í Norðurljósum klukkan 14 og 16 og vara í um 40 mínútur, tónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar hefjast svo klukkan 15 og klukkan 17.

Nærandi fjölskyldudagskrá

Viðburðir fyrir börn og fjölskyldur verða fjölmargir í Hörpu á Menningarnótt. Á Hörputorgi verður hin sívinsæla bátasmiðja Memmm á sínum stað og í Hörpuhorni geta yngstu krílin notið notalegrar tónlistarstundar ásamt foreldrum sínum með tónlistarkonunni Sigrúnu Harðardóttur. Hin einstaka Korda Samfónía býður til hvort tveggja lagasmiðju og samsöngs í Silfurbergi og ÞYKJÓ hreiðrar um sig víðs vegar á jarðhæð Hörpu og leiðir afmæliskórónugerð og könnunarleiðangra um heim dýratóna og fuglasöngs. Ekki má svo gleyma tónlistarmúsinni Maxímús Músíkús, sem verður á ferð og flugi um húsið í sérstöku tyllidagaskapi.

Dans dans dans

Dansinn mun duna um gervalla Hörpu á Menningarnótt. Dönsurum úr Íslenska dansflokknum bregður fyrir í óvæntum og lifandi innskotum víðs vegar um húsið og í Hörpuhorni geta börn og fjölskyldur stigið Dans ársins ásamt Ingu Maren Rúnarsdóttur, dansara og Áskeli Harðarsyni sem þeytir skífum. Slegið verður upp seiðandi tangóballi í Flóa með Bryndísi Halldórsdóttur og Hany Hadya og ekki má gleyma gleðisveitinni Hnokkum sem verður á vappi um húsið og slær upp sprellfjörugu sveifluballi með dönsurum frá Sveiflustöðinni.

Lúðrablástur á Hörputorgi

Á Hörputorgi verður mikið um dýrðir en að baki dagskránni stendur Landsbankinn auk Hörpu. Auk áðurnefndrar bátasmiðju verður hinn árvissi og stórskemmtilegi lúðrasveitabardagi á sínum stað með tilheyrandi mútum, svikum og frændhygli. Dansarar frá Dansi Brynju Péturs stíga kraftmikinn street dans og á Hörputorgi verður seiðandi loftfimleikaatriði auk þess sem Brumm Brumm, bíllinn góði, býður krökkum upp á skemmtilegt prent-tattú.

Íslensk tónlist frá landnámi til heimsfrægðar

Á glænýrri og spennandi upplifunarsýningu í framhúsi Hörpu verður hægt að sökkva sér í heim íslenskrar tónlistar. Ókeypis er á sýninguna í tilefni Menningarnætur frá 13 - 17. Takmarkað pláss er í boði, fyrstir koma, fyrstir fá og aldurstakmark er 10 ára.

A woman with long, wavy brown hair in a black velvet dress looks upward with hands clasped, against a teal background.

Látum Hörpu hljóma

Dagskránni í Hörpu á Menningarnótt lýkur svo upp úr klukkan 18 þegar Ragnheiður Gröndal og Karlakórinn Fóstbræður leiða samsöng gesta í alrými Hörpu. Á efnisskrá verða ástsæl og alkunn dægurlög, þar á meðal eftir tónlistarmennina og lagahöfundana Björgvin Halldórsson, Gunnar Þórðarson, Magnús Eiríksson og Magnús Þór Jónsson, Megas, sem allir kvöddu á árinu. Söngbók með þeim lögum má finna HÉR.

Við hlökkum til að fagna Menningarnótt og 15 ára afmæli Hörpu með ykkur.

Gott að vita

Bílakjallari Hörpu verður opinn á eftirfarandi tímum á Menningarnótt:

  • Frá kl. 00:00 – 07:00 Inn- og útakstur bílaumferðar eingöngu um rampinn við Hörpu (Hafnartorg/Kolagata og Reykjastræti lokað).

  • Frá kl. 07:00 – 15:00 Allir þrír inngangar og útgangar bílakjallarans lokaðir fyrir bílaumferð.

  • Frá kl. 15:00 – 21:00 Inn- og útakstur eingöngu um rampinn við Hörpu (Hafnartorg/Kolagata og Reykjastræti lokað).

  • Frá kl. 21:00 – 23:15 Aðgengi að og frá bílakjallara lokar.

  • Allir vagnar Strætó munu koma sér fyrir á Sæbraut til að aka fólki heim eftir flugeldasýningu.

An empty, modern concrete parking garage with yellow floor markings, uplighting on a textured wall, and a glass entrance with automatic doors on the right.

Annað:

  • Veitingaþjónusta Hörpu verður með ljúffengar veitingar á boðstólnum á jarðhæð Hörpu þar sem hægt verður að versla drykki, sætmeti, ávexti og fleira.
  • Fatahengi er staðsett á K1 við hliðina á rúllustiganum upp á fyrstu hæð.
  • Óskilamunir - ef hlutur glatast á deginum biðjum við þig vinsamlega um að senda okkur fyrirspurn og við svörum eins fljótt og auðið er.
  • Salerni í Hörpu eru staðsett á öllum hæðum og aðgengileg gestum allan daginn.
  • Vatnshani er í Eyri, fyrir utan Silfurberg á annarri hæð.

La Prima­vera Ristor­ante

Ítalski veitingastaðurinn La Primavera á 4. hæð Hörpu verður opinn frá kl. 17:30 á Menningarnótt. Eldhúsið lokar kl. 21:30. Tryggðu þér borð á besta stað í bænum.

A plate of prosciutto drizzled with oil and garnished with basil leaves, set on a white tablecloth with silverware.

Hnoss Bistro

Á Hnoss Bistro á jarðhæð Hörpu verður barnvænt brönshlaðborð frá kl. 11:30-15:30. Verð 6.500 kr. fyrir fullorðna, 3.250 kr. fyrir börn 6-11 ára og frítt fyrir börn 5 ára og yngri. Bókaðu borð tímanlega í brönsinn. Skemmtilegur og léttur menningarnætur-matseðill í boði og drykkir kl. 19:00

A buffet line displaying various dishes, a chafing dish, and a large black pot.

Volcano Express

Volcano Express verður opið á K2 í Hörpu á Menningarnótt frá kl. 10:00 til kl. 20:00, eins og alla daga. Gestir fá tækifæri til þess að upplifa magnaða ferð inn í heim eldfjalla með hreyfisætum, hitaáhrifum og stórbrotnu myndefni.

Advertisement for 'The Volcano Express' showing two people and empty seats flying over an active volcano with lava, asking 'Have you flown over a volcano?'

Heimur íslenksrar tónlistar

Heimur íslenskrar tónlistar býður gestum í ferðalag um sögu og þróun íslenskrar tónlistar – frá landnámi til dagsins í dag. Upplifunarsýningin er opin frá kl. 10:00-20:00 og ókeypis í tilefni Menningarnætur milli 13:00-17:00.

Logo for WIM: The World of Icelandic Music, on a green background with a subtle geometric pattern.