klassík, sígild og samtímatónlist, sinfóníuhljómsveit, tónlist

Mahler nr. 3 - Lista­hátíð í Reykjavík - Sinfón­íu­hljóm­sveit Íslands

Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða

Verð

4.000 - 10.200 kr

Næsti viðburður

fimmtudagur 6. júní - 19:30

Salur

Eldborg

EFNISSKRÁ
Gustav Mahler Sinfónía nr. 3

HLJÓMSVEITARSTJÓRI
Eva Ollikainen

EINSÖNGVARI
Christina Bock

KÓRAR
Vox Feminea, Stefan Sand Groves kórstjóri
Kammerkórinn Auroro, Sigríður Soffía Hafliðadóttir, kórstjóri
Stúlknakór Reykjavíkur, Margrét Pálmadóttir, kórstjóri

Þriðja sinfónía Mahlers er heill heimur út af fyrir sig, eins og tónskáldið taldi reyndar að allar sinfóníur ættu að vera. Hún er í senn óður til náttúrunnar og djúphugul, heimspekileg könnun á mannlegu hlutskipti. Sjálfur sagði Mahler einmitt að rödd náttúrunnar hljómaði í verkinu, en hann samdi það við bakka Attersee í Austurríki þar sem útsýni yfir vatnið og fjöllin í kring veitti honum stöðugan innblástur og svip­ myndir af veðurfari, gróðri og dýralífi ólíkra árstíða fléttuðust inn í tónsmíðarnar. Mahler hafði hugsað sér að halda lengd verksins í skefjum en þegar andinn var kominn yfir hann varð ekki aftur snúið: „Það er sem straumur sköpunarinnar hafi hrifið mig með sér,“ skrifaði tónskáldið í bréfi. „Ég á mér engrar undankomu auðið!“ Sinfónían varð sú lengsta af öllum 10 sinfóníum hans en hún er í sex þáttum og tekur um eina og hálfa klukkustund í flutningi.

Þrátt fyrir lengdina er verkið einkar aðgengilegt og ekki laust við að hlustandinn láti berast með sama straumi og Mahler forðum. Það tilfinningalega ferðalag sem sinfónían leiðir hlustandann í er líka varðað lýsandi nöfnum sem tónskáldið gaf þáttunum sex, þótt síðar hafi hann kosið að halda þeim utan við prentaðar útgáfur verksins. Þannig hefst hinn stór­ brotni fyrsti þáttur á því að sumarið heldur innreið sína en þeir næstu eru helgaðir lifandi verum: blómunum á enginu, dýrum skógarins og sjálfum manninum. Síðustu tveir þættir sinfóníunnar lúta að upphafnari fyrirbærum: englunum og ástinni, en lokaþátturinn er hægur og kærleiksríkur þakk­ lætissöngur til alls heimsins.

Þetta stórvirki Mahlers krefst óvenjustórrar sinfóníuhljóm­ sveitar, þriggja kóra og einsöngvara en með einsöngshlut­ verkið fer hin þýska Christina Bock.

Tónleikarnir eru samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík og Sinfóníuhljómsveitar Íslands og það er Eva Ollikainen, aðalhljómsveitarstjóri sveitarinnar, sem stýrir flutningnum.


Viðburðahaldari

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Miðaverð er sem hér segir:

A

8.800 kr.

B

7.300 kr.

C

5.800 kr.

D

4.000 kr.

X

10.200 kr.

Eldborg

Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn tekur allt að 1600 manns í sæti. Í Hörpuhorni, við glerhjúpinn á annarri hæð, er unnt að vera með standandi kaffiveitingar eða móttökur tengdar Eldborg.