hátíðir, rokk og popp, sígild og samtímatónlist, tónlist

Jacob Collier á Lista­hátíð í Reykjavík 2024

Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða

Verð

3.900 - 14.900 kr

Næsti viðburður

sunnudagur 16. júní - 20:00

Salur

Eldborg

Jacob Collier á Listahátíð í Reykjavík 2024!

“Ég hef aldrei á ævinni séð aðra eins hæfileika,” sagði goðsögnin Quincy Jones um hinn unga Jacob Collier sem kemur fram á Listahátíð í Reykjavík 16. júní í Eldborg.

Þessi fjölhæfi og einlægi tónlistarmaður þykir engum líkur á sviði og nær magnaðri tengingu við áhorfendur. Hann sló fyrst í gegn fyrir um áratug síðan með eigin útsetningum á þekktum lögum þar sem hann raddaði margfalt með sjálfum sér og lék á öll hljóðfæri. Hann er í dag sexfaldur Grammy-verðlaunahafi sem hefur komið fram með fjölbreyttum hópi tónlistarfólks og nýtur ómældrar virðingar og vinsælda í tónlistarheiminum. Hann hefur unnið með jafn ólíku tónlistarfólki og Hans Zimmer, Coldplay, Brandi Carlile, BTS, Stormzy, Pharrell Williams og Aliciu Keys. Tónlistarsköpun hans lýtur sínum eigin lögmálum og þar kallast á heimur djassins, sálartónlistar og R&B, popps og jafnvel klassískrar tónlistar. Á tónleikunum í Eldborg fáum við að sjá hann í elementinu sínu þar sem hann grípur í ólík hljóðfæri og stekkur á milli tónlistarstíla.

Á TikTok og Instagram er Jacob Collier einn sá allra vinsælasti meðal tónlistaráhugafólks.

Forsala fyrir póstlista Listahátíðar hefst fimmtudaginn 15. febrúar kl. 11:00 en almenn miðasala sólarhring síðar. Smellið hér til að skrá ykkur á póstlistann.

“Einn eftirsóttasti tónlistarmaður heims.” Rolling Stone
“Sláandi, einstakur flutningur.” The Guardian


Viðburðahaldari

Listahátíð í Reykjavík

Miðaverð er sem hér segir:

A

12.900 kr.

B

10.900 kr.

C

8.900 kr.

D

6.900 kr.

X

14.900 kr.

E

3.900 kr.

Eldborg

Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn tekur allt að 1600 manns í sæti. Í Hörpuhorni, við glerhjúpinn á annarri hæð, er unnt að vera með standandi kaffiveitingar eða móttökur tengdar Eldborg.