Fjölskyldudagskrá Hörpu, Menningarnótt, Ókeypis

Verð
0 kr
Næsti viðburður
laugardagur 22. ágúst - 13:00
Salur
Hörputorg
Memmm slær upp hátíðarþorpi á Hörputorgi á Menningarnótt. Þar geta börn og fjölskyldur átt nærandi samverustund, spreytt sig á bátasmíði, buslað í vatni, blásið tilkomumiklar hátíðarsápukúlur og gengið á stultum svo fátt eitt sé nefnt.
Memmm hannar og heldur viðburði sem stuðla að nærandi samveru fyrir alla fjölskylduna. Áhersla er lögð á leik, sköpun, flæði og tengingu við náttúru og vísindi. Viðburðir Memmm geta ýmist verið innandyra eða úti við og markmiðið er ávallt að hvetja til þátttöku allra. Memmm samanstendur af fagfólki sem hefur áhuga á velferð fjölskyldna á Íslandi.
Viðburðahaldari
Harpa
Þessi viðburður er ókeypis
Dagskrá
laugardagur 22. ágúst - 13:00
Hleður
Næstu viðburðir í Hörpu