Fjölskyldan, Kammertónlist, Klassík, Sígild og samtímatónlist, Tónlist

Salur
Norðurljós
Þrjár raddir fléttast saman á opnunartónleikum Seiglu og kanna goðsagnir náttúrunnar. Söngkonurnar Harpa Ósk Björnsdóttir, Kristín Einarsdóttir Mäntylä og Hildigunnur Einarsdóttir, ásamt Elísabet Waage á hörpu og Matthildi Önnu Gísladóttur á píanó, leiða saman óperu, sönglög og þjóðlagaarf frá ýmsum löndum Evrópu. Tónlistin ferðast á milli áa, skóga og yfirnáttúrulegra vera og rekur sögur sem hafa streymt um evrópska menningu um aldir.
Efnisskráin opnar í ríki vatnsins, þar sem goðsagnir og náttúra mætast. Rínarmeyjar Richards Wagners gæta geislandi fjársjóðs undir yfirborði árinnar. Tónlistin heldur áfram þessari könnun á töfrandi heimum vatnsins, frá ljóðrænum myndum af hafi og kvöldsól hjá Debussy og Elgar til keltneskra þjóðsagna um selafólk í The Seal Man eftir Rebeccu Clarke. Í Söng til tunglsins úr Rusölku eftir Antonín Dvořák birtist svo þráin eftir tengslum við heim sem er utan seilingar.
Frá vatninu liggur ferðin inn í skóginn, stað umbreytinga og dulinnar lífsorku, þar sem mörkin milli raunveruleika og ímyndunar verða óljós. Í atriðum úr A Midsummer Night’s Dream eftir Benjamin Britten kynnumst við töfraheimi Shakespeares, þar sem Oberon, Títanía og Helena fléttast saman í flóknum vef ástar og örlaga. Í Unglingnum í skóginum eftir Jórunni Viðar við ljóð Halldórs Laxness og í Hans og Grétu eftir Engelbert Humperdinck birtist skógurinn sem staður leyndardóma, ótta og undrunar.
Hátíðaropnun
Opnunarhátíð Seiglu fer fram í Hörpuhorni - komdu og fáðu þér drykk áður en fyrstu tónleikar hátíðarinnar hefjast ásamt flytjendum, skipuleggjendum og aðstandendum. Þetta er einstakt tækifæri til að hittast og fagna upphafi helgar stútfullri af fjölbreyttum viðburðum. Hátíðardagskrá og tónlistarfólk Seiglu verður kynnt og svo leiðum við inn í helgina með tónlistarflutningi frá nokkrum af flytjendum hátíðarinnar.
Um flytjendur
Leiðir Kristínar Einarsdóttur Mäntylä sóprans, Hörpu Óskar Björnsdóttur sóprans og Hildigunnar Einarsdóttur mezzósóprans hafa legið saman margsinnis í gegnum árin. Harpa og Kristín ólust upp við að syngja saman í kórum Langholtskirkju í Reykjavík og héldu síðar áfram námi við Söngskólann í Reykjavík og Tónlistarháskólann „Felix Mendelssohn Bartholdy“ í Leipzig. Hildigunnur hefur einnig sungið með þeim báðum í ýmsum kórum og einsöngvaraverkefnum, meðal annars með Hljómeyki og Schola Cantorum. Það er skemmtileg tilviljun að söngkonurnar þrjár verða allar hluti af einsöngvarahópi nýju Óperunnar á fyrsta starfsári hennar.
Þessir tónleikar marka í fyrsta sinn sem þær koma allar þrjár fram saman á sviði. Með þeim koma fram Matthildur Anna Gísladóttir píanóleikari og Elísabet Waage hörpuleikari, sem leiða áheyrendur með þeim inn í heim vatns, skógar og dulrænna vera.
Spjall og drykkir með flytjendum
Að opnunartónleikum loknum bjóðum við gestum að staldra við og hitta flytjendur Seiglu yfir drykk og spjalli. Þar gefst tækifæri til að halda tónlistinni gangandi í samtali: að ræða verkin, hugmyndirnar á bak við þau og upplifun kvöldsins í afslöppuðu og notalegu andrúmslofti. Á barnum í Hörpuhorni verður hægt að kaupa drykki og léttar veitingar.
Söngur: Harpa Ósk Björnsdóttir, Kristín Einarsdóttir Mäntylä, Hildigunnur Einarsdóttir
Hörpuleikur: Elísabet Waage
Píanóleikur: Matthildur Anna Gísladóttir
Vatn
Richard Wagner (1813–1883)
Söngur Rínardætra úr óperunni „Götterdämmerung“
„Frau Sonne, sendet lichte Strahlen…“
Edward Elgar (1857–1934)
úr ljóðaflokknum “Sea Pictures”
Texti: Roden Noel
„Sea Slumber Song“
Rebecca Clarke (1886–1979)
Texti: John Masefield
„The Seal Man“
Claude Debussy (1862–1918)
Texti: Paul Bourget
„Beau soir“
Antonín Dvořák (1841–1904)
Úr óperunni „Rusalka“
„Měsíčku na nebi hlubokém“
Michel Tournier (1924-2016)
Vers la source dans le bois
Skógur
Benjamin Britten (1913–1976)
úr óperunni „A Midsummer Night's Dream“
Texti: William Shakespeare
„Oberon is passing fell and wrath…“
„Come, now a roundel“
„Injurious Hermia!“
„Be kind and courteous to this gentleman“
Jórunn Viðar (1918–2017)
Ljóð: Halldór Laxness
Únglingurinn í skóginum
Engelbert Humperdinck (1854–1921)
úr óperunni „Hänsel und Gretel“
„Wo bin ich? Wach ich?“
Richard Wagner (1813–1883)
Úr óperunni “Das Rheingold”
„Lugt, Schwestern, die Weckerin lacht in den Grund“
Lengd: 75 mínútur, án hlés.
Almennt verð: 4.500kr
Verð fyrir nema, meðlimi Íslenska Schumannfélagsins og tekjulága: 2.500kr í miðasölu Hörpu.
Spjall og drykkir með flytjendum
Að opnunartónleikum loknum bjóðum við gestum að staldra við og hitta flytjendur Seiglu yfir drykk og spjalli.
Þar gefst tækifæri til að halda tónlistinni gangandi í samtali: að ræða verkin, hugmyndirnar á bak við þau og upplifun kvöldsins í afslöppuðu og notalegu andrúmslofti. Á barnum í Hörpuhorni verður hægt að kaupa drykki og léttar veitingar.
–
Hátíðardagskrá Seiglu, upplýsingar um flytjendur og aðra viðburði má finna á www.seiglafestival.com og í hátíðartímaritinu Seiglazine.
Harpa er sérstakur styrktaraðili Seiglu 2026. Tónlistarhátíðin Seigla er einnig styrkt af Tónlistarsjóði, Styrktarsjóði SUT og Ruthar Hermanns, Ýli, Menningarsjóði FÍH, Listaháskóla Íslands og Hollvinum Seiglu.
Viðburðahaldari
Seigla
Þessi einstaki og fallegi salur á annarri hæð Hörpu hentar vel fyrir tónleika, ráðstefnur, sýningar, árshátíðir og hvers kyns mannamót. Norðurljós er hin fullkomna umgjörð og býður upp á fjölbreytta notkunarmöguleika.

Hleður
Næstu viðburðir í Hörpu