Menningarnótt, Ókeypis, Rokk og popp, Tónleikar

Verð
0 kr
Næsti viðburður
laugardagur 22. ágúst - 16:00
Salur
Kaldalón
Söngvaskáldið Lyon Hansen, þungarokkhljómsveitin Tunghoyrt og Dania O. Tausen ásamt Bartal Augustinussen koma fram í veglegri tónlistardagskrá í Kaldalóni á Menningarnótt. Dagskráin er í samstarfi við Sendiskrifstofu Færeyja á Íslandi sem hefur um árabil staðið fyrir fjölbreyttu tónleikahaldi á Menningarnótt í Hörpu þar sem margir af helstu tónlistarmönnum Færeyja hafa komið fram.
16:00 – 16:30
Lyon Hansen
Lyon Hansen hefur á undanförnum árum skipað sér í fremstu röð færeyskra þjóðlagatónlistarmanna. Hann hefur sent frá sér breiðskífurnar Lyon (2015) og Skull-Sized Kingdom (2025) auk nokkurra smáskífa. Lyon Hansen hefur hlotið mikið lof fyrir einlæga texta, næmar lagasmíðar og hljóðheim sem er hvort tveggja látlaus og áhrifamikill.
16:45 – 17:15
Tunghoyrt
Tónlist færeysku þungarokksveitarinnar Tunghoyrt er kraftmikil, tjáningarrík og grípandi en hljómsveitina skipa fjórir, kornungir Færeyingar. Hljómsveitin var stofnuð árið 2024 og sendi fyrr á þessu ári frá sína fyrstu
stuttskífu sem ber heitið ÓJÓ. Tunghoyrt skipa Bjarni Jakobsen, trommur, Erik Reynheim, bassi, Helge Greve á gítar og Jóni Strøm, söngur.
17:30 – 18:00
Dania & Bartal
Tónlistarkonan og ljóðskáldið Dania O. Tausen er margverðlaunuð og hefur hlotið mikið lof fyrir blæbrigðaríka og fíngerða tónlist sína sem og hráa og beinskeytta texta. Dania hefur sent frá sér tvær
rómaðar plötur, gonguteigatúnatos (2021) og ja/nei – og restin av vikuni (2023). Sú síðarnefnda hlaut verðlaunin Plata ársins á Færeysku tónlistarverðlaununum. Dania hefur komið fram víða og meðal annars hitað upp fyrir Eivør Pálsdóttur og einnig túrað með hljómsveitinni Supersport.
Færeyski gítarleikarinn og söngvaskáldið Bartal (Bartal Augustinussen) hefur starfað með hljómsveitunum Moby the Pink Pilot og Fróða og er meðlimur í dúettnum Gudrun & Bartal.
Viðburðahaldari
Harpa
Þessi viðburður er ókeypis
Dagskrá
laugardagur 22. ágúst - 16:00
Kaldalón er salur staðsettur á fyrstu hæð Hörpu, norðan megin í húsinu. Hann hentar mjög vel fyrir allar tegundir tónleika, leiksýningar, ráðstefnur, fundi og listviðburði.

Hleður
Næstu viðburðir í Hörpu