Klassík, Ókeypis, Sígild og samtímatónlist, Tónlist

Salur
Eldborg
Norræna ungmennahljómsveitin Orkester Norden heldur tónleika í fyrsta sinn á Íslandi í sumar!
Orkester Norden sem stofnað var til árið 1986 fyrir tilstilli Lionshreyfingarinnar í Svíþjóð er skipuð tónlistarnemendum Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna á aldrinum 15-25 ára. Á hverju ári er haldið námskeið sem lýkur með tónleikum og hafa fjölmargir íslenskir tónlistarmenn tekið þátt í verkefninu í gegnum árin. Efnisskráin í ári er einstaklega metnaðarfull og verður flutt bæði í Hofi á Akureyri og Hörpu í Reykjavík.
Efnisskrá
Franz Schubert: Sinfónía nr. 8 í h-moll ”Ófullgerða sinfónían”
Igor Stravinsky: Pulcinella svíta
hlé
Carl Nielsen: Sinfónísk rapsódía
Ludvig van Beethoven: Sinfónía nr. 6 í F-dúr ”Pastoral-sinfónían"
Aðgangur að tónleikunum er ókeypis en við værum þakklát fyrir stuðning við verkefnið um verðgildi miða uppá kr. 3.500,-
Styrktareikningur 0544-14-554053
Kt.: 640572-0869
Skýring: Orkester Norden
Orkester Norden er eitt af mörgum norrænum samstarfsverkefnum Lionshreyfingarinnar. Upphafið á sér rætur í Svíþjóð á árunum 1986-1987 þegar þáverandi alþjóðaforseti Lions fól sænskum Lionsfélaga, Lennart Fridén, að finna samnorrænt verkefni fyrir ungt fólk á aldrinum 15-25 ára. Hljómsveitin heldur nú hljómsveitarnámskeið og tónleika á Íslandi í fyrsta skipti undir merkjum Lions á Íslandi!
Orkester Norden er hvert ár skipuð 40-80 hæfileikaríkum ungmennum frá Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum sem eru sérstaklega valin til þátttöku eftir strangt inntökuferli. Átta daga æfingarbúðir eru á Akureyri fyrir tónleikana undir stjórn þekktra norrænna leiðbeinenda. Þar á meðal eru Björg Brjánsdóttir flautuleikari og tónskáld, sem verður leiðbeinandi tréblásaranna og aðstoðarhljómsveitarstjórinn, sem er Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir, en hún lauk námi í hljómsveitarstjórn við Tónlistarháskólann í Ósló nú í vor.
Listrænn stjórnandi er Ilkka Uurtimo, sellóleikari við Sinfóníuhljómsveitina í Lahti, en aðalhljómsveitarstjóri Orkester Norden 2026 er Jan Söderblom. Jan er okkur að góðu kunnur, en hann stjórnaði Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleikum í Eldborg í janúar á þessu ári.
Fjórir ungir íslenskir hljóðfæraleikarar leika með hljómsveitinni að þessu sinni. Sólrún Svava Kjartansdóttir fiðluleikari, Hanna Kristín Stefánsdóttir og Helga Björg Kjartansdóttir víóluleikarar og Karen Jóna Steinarsdóttir flautuleikari.
Með kveðju, Lions á Íslandi og Orkester Norden
Viðburðahaldari
Lions á Íslandi
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn er sérhannaður til tónleikahalds, en hentar einnig vel fyrir ráðstefnur og fyrirlestra.

Hleður
Næstu viðburðir í Hörpu