Ókeypis viðburður, Sígild og samtímatónlist, Tónlist

Verð
0 kr
Næsti viðburður
laugardagur 22. ágúst - 15:00
Salur
Eldborg
Á Menningarnótt í Reykjavík býður Sinfóníuhljómsveit Íslands gestum og gangandi á Sólmyrkvahátíð í Eldborg í fylgd með okkar ástsæla Sævari Helga Bragasyni eða Stjörnu-Sævari. Á tónleikunum förum við í ferðalag til sólarinnar og tunglsins og njótum glæsilegrar tónlistar um leið. Við skoðum hvernig sólarljósið verður til, hvernig sólin fæddist og hvernig hún býr til norðurljósin. Síðan höldum við til tunglsins, skoðum tignarlegan dans mánans um jörðina og hvernig tunglið er að hægja á snúningi jarðar. Hver veit nema sól- og tunglmyrkvar komi við sögu? Á tónleikunum verða einnig gerðar einfaldar sýnitilraunir sem dýpka skilning okkar á sólkerfinu. Verið öll hjartanlega velkomin í veislu fyrir augu og eyru með Sinfóníuhljómsveit Íslands á Menningarnótt í Reykjavík.
Aðgangur á tónleikana er ókeypis og hægt er að sækja miða á sinfonia.is og í miðasölu Hörpu á tónleikadegi frá kl. 10:00.
Hljómsveitarstjóri
Rolf Verbeek
Kynnir
Sævar Helgi Bragason
Tónlist eftir Edvard Grieg, John Williams, Claude Debussy o.fl.
Viðburðahaldari
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Þessi viðburður er ókeypis
Dagskrá
laugardagur 22. ágúst - 15:00
laugardagur 22. ágúst - 17:00
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn er sérhannaður til tónleikahalds, en hentar einnig vel fyrir ráðstefnur og fyrirlestra.

Næstu viðburðir í Hörpu