Sígild og samtímatónlist, Tónlist

Event poster

Antonini & Avital - Sinfón­íu­hljóm­sveit Íslands

Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00

Verð

3.100 - 11.500 kr

Næsti viðburður

fimmtudagur 20. maí - 19:30

Salur

Eldborg

Mandólín er ekki algengt einleikshljóðfæri á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands en nú ber svo við að okkur heimsækir þekktasti mandólínleikari samtímans, Avi Avital. Hann er heillandi tónlistarmaður og göldróttur á hljóðfæri sitt. Á þessum tónleikum sýnir hann snilli sína í laufléttum konsert frá klassíska tímanum eftir Johann Nepomuk Hummel og einnig í konsert fyrir mandólín og blokkflautu eftir meistara Bach þar sem hljómsveitarstjórinn Giovanni Antonini leikur á blokkflautuna. Antonini er aufúsugestur hingað til lands sem beðið hefur verið eftir enda stjórnar hann öllum fremstu sinfóníuhljómsveitum heims. Antonini stjórnar hér ennfremur tveimur sinfóníum klassíska tímans, annarri eftir Joseph Bologne sem fengið hefur aukna athygli á síðustu árum í heimi sígildrar tónlistar – og loks meistaraverki Mozarts, sinfóníu nr. 41 sem jafnan er kölluð Júpítersinfónían. Hún er síðasta og metnaðarfyllsta sinfónía Mozarts og jafnframt einn af hápunktum klassískrar tónlistarhefðar.

Hljómsveitarstjóri


Giovanni Antonini

Einleikari
Avi Avital 

Efnisskrá
Joseph Bologne Sinfónía nr. 1
Johann Nepomuk Hummel Mandólínkonsert í G-dúr
Johann Sebastian Bach Konsert fyrir mandólín og blokkflautu í c-moll, BWV 1060R
Wolfgang Amadeus Mozart Sinfónía nr. 41, Júpíter


Viðburðahaldari

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Miðaverð er sem hér segir

A

9.300 kr.

B

7.100 kr.

C

5.100 kr.

D

3.100 kr.

X

11.500 kr.

Dagskrá

fimmtudagur 20. maí - 19:30

Eldborg

Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn er sérhannaður til tónleikahalds, en hentar einnig vel fyrir ráðstefnur og fyrirlestra.

a large empty auditorium with red seats and a stage .