Kór, Ókeypis viðburður

Verð
0 kr
Næsti viðburður
sunnudagur 3. maí - 16:00
Salur
Hörpuhorn
Harmóníukórinn syngur í Hörpuhorni, sunnudaginn 3. maí frá 16 - 16:30. Stjórnandi kórsins er Sólveig Sigurðardóttir. Öll velkomin og aðgangur ókeypis.
Tónleikarnir eru liður í tónleikaröð í Hörpuhorni sem Félag íslenskra kórstjóra gengst fyrir í samstarfi við Hörpu. Tónleikar fara fram 25. apríl, 1. og 3. maí.
Harmóníukórinn var lengst starfandi í nafni Landsvirkjunar og starfsmannafélagsins STALA. Hann var stofnaður 1991 en haustið 2013 var slitið á þau tengsl og kórinn er nú rekinn af félögum hans. Kórinn hefur því verið starfandi í 35 ár samfleytt.
Fyrsti stjórnandi var Páll Helgason en hann lét af stjórn kórsins 2005 eftir 14 ára starf. Kórstjórar hafa verði 5 alls. Núverandi kórstjóri frá árinu 2021 er Sólveig Sigurðardóttir.
Verkefni kórsins hafa verið af ýmsum toga eins og gefur að skilja á svo langri ævi. Kórinn hefur komið fram við ýmis tilefni bæði andleg og veraldleg. Haldnir eru aðventutónleikar og vortónleikar, sungið hér og þar á kórferðalögum og svo í heimsóknum til annarra kóra eða öfugt. Viðamesta verkefni kórsins og ákveðinn hápunktur var þegar Carmina Burana var flutt í Carnegie Hall í júní 2008 ásamt fjórum öðrum kórum undir stjórn Garðars Cortes.
Lagaval kórsins er fjölbreytt og margvíslegt. Þjóðleg tónlist, klassísk tónlist, trúarleg verk og dægurlög, allt eftir tilefni og ástæðum.
Viðburðahaldari
Harpa
Þessi viðburður er ókeypis
Dagskrá
sunnudagur 3. maí - 16:00
Hörpuhorn er glæsilegt opið rými, við glerhjúpinn á annarri hæð, með útsýni yfir miðborgina, hafið og fjöllin. Í Hörpuhorni eru margir möguleikar á útfærslu tónleika fyrir allar tónlistarstefnur.

Næstu viðburðir í Hörpu