Dans, Ókeypis viðburður

Verð
0 kr
Næsti viðburður
miðvikudagur 29. apríl - 17:00
Salur
Hörpuhorn
Í tilefni af Alþjóðlega dansdeginum kynna Dansverkstæðið, Félag íslenskra listdansara og Íslenski dansflokkurinn, í samstarfi við List fyrir alla, dansviðburðinn Dans dans dans í Hörpu.
Við höfum fengið danshöfundinn Ingu Maren Rúnarsdóttir með okkur í lið og hefur hún samið stuttan dans sérstaklega fyrir þennan dag!
Öll eru velkomin í Hörpuhorn á 2. hæð kl. 17:00. Inga Maren Rúnarsdóttir leiðir gesti í dans með dansi ársins 2026 og Áskell Harðarson þeytir skífum.
Við hlökkum til að fagna dansinum með ykkur öllum!
Viðburðahaldari
Harpa
Þessi viðburður er ókeypis
Dagskrá
miðvikudagur 29. apríl - 17:00
Hörpuhorn er glæsilegt opið rými, við glerhjúpinn á annarri hæð, með útsýni yfir miðborgina, hafið og fjöllin. Í Hörpuhorni eru margir möguleikar á útfærslu tónleika fyrir allar tónlistarstefnur.

Næstu viðburðir í Hörpu