Kór, Ókeypis viðburður

Verð
0 kr
Næsti viðburður
sunnudagur 3. maí - 14:00
Salur
Hörpuhorn
Kvennakór Háskóla Íslands býður til vortónleika í Hörpuhorni 3. maí. Yfirskrift tónleikana í ár er Móðir jörð, hafið og tunglið. Sungin verða lög úr ýmsum áttum en þó má inni á milli greina þjóðlög af ýmsum toga. Sungið er á íslensku, ensku, bulgarísku, sænsku og tékknesku í þetta skiptið, en kórinn hefur þá sérstöðu að hann skipa kórsöngvarar frá ýmsum menningarheimum. Stjórnandi kórsins er Lilja Margrét Riedel.
Tónleikarnir taka um það bil 45 mínútur. Enginn aðgangseyrir og öll hjartanlega velkomin!
Tónleikarnir eru liður í tónleikaröð í Hörpuhorni sem Félag íslenskra kórstjóra gengst fyrir í samstarfi við Hörpu. Tónleikar fara fram 25. apríl, 1. og 3. maí.
Viðburðahaldari
Harpa
Þessi viðburður er ókeypis
Dagskrá
sunnudagur 3. maí - 14:00
Hörpuhorn er glæsilegt opið rými, við glerhjúpinn á annarri hæð, með útsýni yfir miðborgina, hafið og fjöllin. Í Hörpuhorni eru margir möguleikar á útfærslu tónleika fyrir allar tónlistarstefnur.

Næstu viðburðir í Hörpu