Kór, Ókeypis viðburður

Event poster

Kór Félags eldri borgara í Reykjavík syngur í Hörpu­horni

Verð

0 kr

Næsti viðburður

sunnudagur 3. maí - 15:30

Salur

Hörpuhorn

Kór Félags eldri borgara í Reykjavík syngur í Hörpuhorni sunnudaginn 3. maí frá 15:30 - 16:00. Stjórnandi er Kristín Jóhannesdóttir og meðleikari er Jónas Þórir. Aðgangur á tónleikana er ókeypis og öll velkomin. 

Tónleikarnir eru liður í tónleikaröð í Hörpuhorni sem Félag íslenskra kórstjóra gengst fyrir í samstarfi við Hörpu. Tónleikar fara fram 25. apríl, 1. og 3. maí.

-

Kór Félags eldri borgara í Reykjavík var stofnaður árið 1986 og hefur verið starfræktur nær samfleytt síðan. Fyrsta árið starfaði hann undir stjórn Kjartans Ólafssonar, en Kristín Sæunn Pjetursdóttir tók við af honum og stýrði kórnum á þriðja áratug. Kórfélagar eru nú 45, þeir elstu á tíræðisaldri, og hafa flestir sungið í öðrum kórum um ævina. Kórinn æfir alls konar tónlist, bæði íslenska og erlenda og kemur fram við ýmis tækifæri, m.a. annars á árlegum vortónleikum ásamt karlakórnum Kátum körlum. Kórinn tók þátt í viðamiklu samstarfi við fleiri kóra eldri borgara sem fjölmenntu á Þingvöll 16. júní 2024 og sungu í tilefni af 80 ára afmæli lýðveldisins. Síðastliðin tvö ár hafa sömu hópar haldið sameiginlega jólatónleika í Langholtskirkju í desember. Stjórnandi kórsins er Kristín Jóhannesdóttir, meðleikari er Jónas Þórir.

Viðburðahaldari

Dægurflugan

Þessi viðburður er ókeypis

Dagskrá

sunnudagur 3. maí - 15:30

Hörpuhorn

Hörpuhorn er glæsilegt opið rými, við glerhjúpinn á annarri hæð, með útsýni yfir miðborgina, hafið og fjöllin. Í Hörpuhorni eru margir möguleikar á útfærslu tónleika fyrir allar tónlistarstefnur.

the inside of a large building with a lot of windows and chairs .