Rokk og popp, Tónlist, Þjóðlagatónlist

Event poster

Ólöf Arnalds - SPÍRA útgáfu­tón­leikar

Miðasala hefst 13. febrúar - kl. 10:00
Miðasala hefst 13. febrúar - kl. 10:00
Miðasala hefst 13. febrúar - kl. 10:00
Miðasala hefst 13. febrúar - kl. 10:00
Miðasala hefst 13. febrúar - kl. 10:00
Miðasala hefst 13. febrúar - kl. 10:00
Miðasala hefst 13. febrúar - kl. 10:00
Miðasala hefst 13. febrúar - kl. 10:00
Miðasala hefst 13. febrúar - kl. 10:00
Miðasala hefst 13. febrúar - kl. 10:00
Miðasala hefst 13. febrúar - kl. 10:00
Miðasala hefst 13. febrúar - kl. 10:00
Miðasala hefst 13. febrúar - kl. 10:00

Verð

13.990 kr

Næsti viðburður

fimmtudagur 7. maí - 20:00

Salur

Norðurljós

Ólöf Arnalds - SPÍRA útgáfutónleikar

ALMENN MIÐASALA HEFST 13. FEBRÚAR KL. 10
PÓSTLISTAFORSALA SENU LIVE FER FRAM 12. FEBRÚAR KL. 10
SKRÁNING Í HANA HÉR

Ólöf Arnalds snýr aftur á svið í fyrsta sinn í áratug með nýju Bella Union plötuna sína; Spíra. Ólöf er þekkt fyrir sína einstöku sópran rödd og látlausar en áhrifamiklar útsetningar.

Ólöf er ein virtasta söngkona landsins á sviði nútímalegrar þjóðlagatónlistar. Á Spíru snýr hún aftur á heimaslóðir, með íslenskum textum og þeim nána, mínimalíska hljóðheimi sem færði henni alþjóðlega viðurkenningu.

Tónleikaferðalagið samanstendur af sitjandi, hljóðlátum tónleikum í vandlega völdum rýmum með næma hljóðvist víðs vegar um Bretland og Evrópu, þar sem áhorfendum gefst sjaldgæft tækifæri til að upplifa tónlist Ólafar í sinni tærustu mynd.

Með henni á tónleikunum verða tónlistarmennirnir Skúli Sverrisson og Davíð Þór Jónsson.

Miðaverð er 13.990 kr og aðeins er selt í ónúmeruð sæti.

Umsjón: Sena Live

UM ÓLÖFU
Ólöf Arnalds hefur í tæpa tvo áratugi byggt upp einstakt orðspor með útgáfum sínum og tónleikahaldi. Hún er klassískt menntuð í söng og á fiðlu og vakti fyrst alþjóðlega athygli sem meðlimur í íslensku hljómsveitinni múm snemma á 21. öld.

Frumraun hennar, Við og við, sem Kjartan Sveinsson úr Sigur Rós framleiddi, varð fljótt að nútímaklassík í íslenskri tónlist og hlaut mörg af virtustu tónlistarverðlaunum landsins.

Ólöf hefur túrað heiminn með Dirty Projectors, Blonde Redhead, Air, CocoRosie, Jonathan Richman, Sigur Rós og Grinderman, og útgáfur hennar hafa hlotið lof gagnrýnenda meðal annars í The New York Times, NME, Mojo, Spin, Paste, Vanity Fair og The Guardian. Hún hefur einnig átt í víðtæku samstarfi við Björk, Ragnar Kjartansson, Skúla Sverrisson, Davíð Þór Jónsson og aðra leiðandi listamenn í íslenskri tónlistar- og myndlistarsenu.

Spíra markar endurkomu hennar að náinni hljóðversvinnu og er hennar fyrsta heila plata í rúmlega tíu ár.

„Dáleiðandi… Með rödd sem er tær eins og fjallalind flytur Ólöf draugalega falleg þjóðlög… Ef þú hefur áður fallið fyrir töfrum Joanna Newsom, þá er þetta fyrir þig.“ — The Sun ★★★★

„Það er röddin sem heillar… Í gegnum fallega og ljómandi tregasöngva flytur hún meistaralega sýnikennslu í hljóðlátri ákefð og tilfinningalegri nákvæmni.“ — HiFi Choice ★★★★

Viðburðahaldari

Sena Live

Miðaverð er sem hér segir

A

13.990 kr.

Dagskrá

fimmtudagur 7. maí - 20:00

Norðurljós

Þessi einstaki og fallegi salur á annarri hæð Hörpu hentar vel fyrir tónleika, ráðstefnur, sýningar, árshátíðir og hvers kyns mannamót. Norðurljós er hin fullkomna umgjörð og býður upp á fjölbreytta notkunarmöguleika.

a large auditorium filled with rows of chairs and purple lights .