Ókeypis viðburður, Sígild og samtímatónlist, Tónlist

Event poster

Youth Chamber Orchestra i Hörpu­horni

Verð

0 kr

Næsti viðburður

fimmtudagur 19. júní - 14:00

Salur

Hörpuhorn

Youth Chamber Orchestra (YCO) heldur tónleika í Hörpuhorni fimmtudaginn 19. júní kl. 14. Leikin verða verk eftir Händel, Tchaikovsky, Piazzolla, Schubert og Piazzolla. Stjórnandi YCO er Aaron Picht.

Kl. 15:15 verða píanótónleikar nemenda í YCO og Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar. Fram koma nemendur sem eru í hópi þeirra bestu á Norðurlöndum og hafa unnið til verðlauna fyrir píanóleik.

Ókeypis er á tónleikana og öll hjartanlega velkomin.

Nánar um YCO:

YCO, Youth Chamber Orchestra,  er skipuð tuttugu úrvals nemendum á aldrinum 13-18 ára, úr tónlistarprógramminu Music Prep‘s Center for Gifted Young Musicians sem stofnað var 1986. Í prógramminu eru starfandi þrjár strengjasveitir og minni kammerhópar sem njóta leiðsagnar meðlima í The Philadelphia Orchestra og leiðandi tónlistarmanna í Fíladelfíu. Margir fyrrverandi nemendur í Music Prep starfa við tónlist í dag m.a. í The Philadelphia Orchestra. Aaron Picht hefur verið stjórnandi sveitarinnar frá 2013.

YCO hefur verið í samstarfi við Tónskóla Sigursveins síðan 2013 og heimsækir nú Ísland í fimmta sinn. YCO hefur haldið tónleika víða á Íslandi, í Hörpu, Listasafni Íslands, Listasafni Reykjavíkur, Kjarvalsstöðum, Seltjarnarneskirkju, Lava Center og Eldheimum. YCO hefur einnig leikið fyrir forseta Íslands á Bessastöðum.



Viðburðahaldari

Harpa

Miðaverð er sem hér segir

A

0 kr.

Dagskrá

fimmtudagur 19. júní - 14:00

Hörpuhorn

Hörpuhorn er glæsilegt opið rými, við glerhjúpinn á annarri hæð, með útsýni yfir miðborgina, hafið og fjöllin. Í Hörpuhorni eru margir möguleikar á útfærslu tónleika fyrir allar tónlistarstefnur.

the inside of a large building with a lot of windows and chairs .

eventTranslations.event-showcase-hörpuhorn