Ókeypis viðburður, Sígild og samtímatónlist, Tónleikar, Tónlist
Verð
0 kr
Næsti viðburður
sunnudagur 27. júlí - 16:00
Salur
Hörpuhorn
Hanna lauk bakkalárprófi frá Tónlistarháskólanum í Leipzig árið 2022 þar sem hún nam söng undir leiðsögn Carol Guber, prófessors. Hanna stundaði áður söngnám við Söngskólann í Reykjavík og lauk þaðan framhaldsprófi undir leiðsögn Ólafar Kolbrúnar Harðardóttur. Vorið 2016 hlaut hún styrk úr Minningarsjóði Vilhjálms Vilhjálmssonar til náms í Söngskólanum og í febrúar 2021 styrk úr minningarsjóði Heimis Klemenzsonar.
Hanna söng hlutverk Papagenu í Töfraflautunni í Theater Rudolstadt sumarið 2021 undir stjórn Oliver Weder í leikstjórn Naima Märker og var auk þess einn sigurvegara keppninnar Ungra einleikara á vegum LHÍ og SÍ sama ár. Hún söng einsöng á tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands í maí 2022.
Hanna hefur reynslu af leikstjórn og leikritaskrifum, en hún fór t.a.m í starfsnám í óperuleikstjórn hjá leikstjóranum Susanne Knapp vorið 2022. Síðastliðið sumar söng hún einsöng á Reykholtshátíð og fór einnig með hlutverk Óla lokbrár í uppsetningu Kammeróperunnar á Hans og Grétu í Tjarnarbíói í desember. Hanna var sigurvegari söngkeppninnar Vox Domini í byrjun árs 2024 og hlaut þar einnig titillinn Rödd ársins. Hanna hefur fengist við leikhús- og kvikmyndagerð meðfram tónlistinni og leikstýrði sinni fyrstu stuttmynd sumarið 2023, Anima Mea, sem kemur út árið 2025.
Hanna stundar nám á Sviðshöfundabraut við Listaháskóla Íslands.
Aðgangur er ókeypis og öll innilega velkomin.
Velkomin heim er tónleikaröð á vegum FÍT og FÍH í samstarfi við Hörpu.
Viðburðahaldari
Harpa
Miðaverð er sem hér segir
A
0 kr.
Dagskrá
sunnudagur 27. júlí - 16:00
Hörpuhorn er glæsilegt opið rými, við glerhjúpinn á annarri hæð, með útsýni yfir miðborgina, hafið og fjöllin. Í Hörpuhorni eru margir möguleikar á útfærslu tónleika fyrir allar tónlistarstefnur.
eventTranslations.event-showcase-hörpuhorn