28. febrúar 2023
Sígildir sunnudagar 2023-2024
Harpa auglýsir eftir þátttakendum í tónleikaröðina
Harpa tónlistar-og ráðstefnuhús auglýsir eftir þátttakendum í tónleikaröðina Sígildir sunnudagar veturinn 2023-2024.
Sígildir sunnudagar er regnhlífarhugtak yfir klassískar tónleikaraðir og staka viðburði í Norðurljósum/Kaldalóni á sunnudögum kl 16:00 frá september 2023 og fram í miðjan maí 2024. Með röðinni gefst áheyrendum kostur á fyrsta flokks kammertónleikum vikulega í Hörpu. Lögð er áhersla á fjölbreytt úrval tónleika með sígildri söng- og hljóðfæratónlist.
Sem fyrr er skipulag tónleika í höndum tónlistarhópanna sjálfra en Harpa veitir röðinni stuðning með afslætti á salarleigu, kynningu og aðstoð við markaðssetningu á íslensku og ensku með það að markmiði að stækka áheyrendahóp klassískra kammertónleika.
Umsóknarfrestur er til og með 1. apríl 2023.
Fréttir
1. júní 2023
38 milljónir söfnuðust á neyðartónleikum Vaknaðu!
Samstaða einkenndi stemninguna í Eldborg á meðan neyðartónleikarnir Vaknaðu! fóru fram, en tónleikarnir voru samtímis sendir út í sjónvarpi RÚV. Þau Ragga Gísla, Bubbi, Nanna, Jónas Sig, Systur, Herra Hnetusmjör, Mugison, Emmsjé Gauti, Una Torfa, Elín Hall, Ólafur Bjarki, Ellen Kristjáns og fjöldinn allur af öðru frábæru tónlistarfólki ljáði málstaðnum krafta sína.
23. maí 2023
Maxímús á íslensku og íslensku táknmáli
Þann 20. maí var metaðsókn í skoðunarferð og sögustund með Maxímús Musíkus í Hörpu, en í þetta sinn var sagan sögð bæði á íslensku og íslensku táknmáli í fyrsta sinn.
23. maí 2023
Harpa auglýsir eftir grasrótartónlistarfólki
fyrir Upprásina, nýja tónleikaröð sem tileinkuð er grasrót íslenskrar tónlistar.