1st March 2024
Upprásin tilnefnd
til Íslensku tónlistarverðlaunanna
Harpa er stolt af tilnefningu Upprásarinnar til Íslensku tónlistarverðlaunanna í flokknum tónlistarviðburður ársins.
Tónleikaröðin er liður í því að framfylgja dagskrárstefnu Hörpu um bætt aðgengi grasrótar og ungs fólks í öllum tónlistargreinum og auka fjölbreytni viðburðarhalds í Hörpu. Upprásin er á vegum Hörpu í samstarfi við Tónlistarborgina Reykjavík og Rás 2.
Til hamingju íbúar Hörpu með tilnefningar; Sinfóníuhljómsveit Íslands í flokknum sígild og samtímatónlist og Stórsveit Reykjavíkur (The Reykjavik Big Band) í flokknum djasstónlist.
Nánar um Upprásina og næstu tónleika.
Íslensku tónlistarverðlaunin verða veitt í Hörpu 12. mars í beinni útsendingu á RÚV. Þar verða, auk þeirra verðlauna sem birtar hafa verið tilnefningar til hér að ofan, veitt heiðursverðlaun, bjartasta vonin útnefnd og tilnefningar til plötuumslags ársins kynntar. Fjöldi tónlistarfólks treður upp og kynnir er Freyr Eyjólfsson.
Fréttir
25th July 2024
1.000 shows
of How to become Icelandic in Harpa
28th June 2024
TourDesk has opened up a booth in Harpa
TourDesk has opened a booth at Harpa, staffed by their What’s On experts!
10th June 2024
Kalabanté fjöllistahópurinn í Hörpu
Daglegt líf í Gíneu er innblástur sýningarinnar Africa in Circus sem er full af lífsgleði, litadýrð, tónlist, dansi og ótrúlegum sirkuslistum.