Við hvetjum gesti til að nota vistvænan ferðamáta, hjóla, ganga eða taka strætó, þegar ferðast er til og frá Hörpu.
Harpa er aðeins í nokkra mínútna göngufjarlægð frá Lækjartorgi sem er ein helsta miðstöð almenningssamgangna í borginni. Hjólastandar eru á bæði austurhlið hússins og í bílakjallara.
Á höfuðborgarsvæðinu aka flestar leiðir Strætó á 15 mínútna fresti en utan annatíma á 30 mínútna fresti. Hér eru nánari upplýsingar um komur og brottfarir strætisvagna við Hörpu.
Í neðri bílakjallara Hörpu (K2) eru 13 hleðslustöðvar frá ON sem eru opnar öllum. Nánari upplýsingar um bílakjallara Hörpu.
Vinsamlegast gefið ykkur nægan tíma, hvort sem þið komið fótgangandi, notið almenningssamgöngur, eða þurfið að leggja bíl eða hjóli. Allt tekur sinn tíma, hvort sem þið þurfið að ná í miða eða gæða ykkur á veitingum eða drykk fyrir viðburð.