Kántrítónlist, Rokk og popp, Tónlist

Verð
12.990 - 22.990 kr
Næsti viðburður
föstudagur 18. júní - 20:00
Salur
Eldborg
Brad Paisley snýr aftur til Íslands – lögin, sögurnar og gítarinn
Ein stærsta stjarna kántrítónlistarinnar, Brad Paisley, snýr aftur til Íslands og heldur einstaka tónleika í Eldborgarsal Hörpu föstudaginn 18. júní 2027.
Þegar Brad Paisley kom fyrst til Íslands í febrúar 2024 fyllti hann Eldborg af kraftmikilli kántrítónlist ásamt hljómsveit sinni. Nú, rúmum þremur árum síðar, snýr hann aftur í sama sal, en að þessu sinni verður upplifunin allt önnur.
Að þessu sinni stendur hann einn á sviðinu með gítarinn sinn og býður upp á órafmagnað og persónulegt tónleikakvöld þar sem nándin við áhorfendur verður í fyrirrúmi.
Órafmagnaðir tónleikar Paisley hafa vakið mikla hrifningu undanfarin ár. Gagnrýnendur og tónleikagestir hafa sérstaklega hrósað stórkostlegum gítarleik hans, skemmtilegum sögum, húmor og þeirri einstöku stemningu sem skapast milli hans og áhorfenda. Einn tónleikagestur lýsti upplifuninni eins og Paisley hefði komið heim í stofu til hans og spilað þar og sagt sögur. Paisley hefur sjálfur sagt að þessir tónleikar séu meðal þeirra eftirminnilegustu sem hann hefur haldið.
Brad Paisley er ekki aðeins ein stærsta stjarna kántrítónlistarinnar heldur einnig afburða gítarleikari og einstaklega skemmtilegur sögumaður. Á tónleikunum fléttar hann saman sínum vinsælustu lögum, sögum af löngum og viðburðaríkum ferli og þeirri léttleikandi kímnigáfu sem hefur gert hann svo vinsælan meðal tónleikagesta um allan heim.
Á glæsilegum ferli sínum hefur Paisley hlotið þrenn Grammyverðlaun og fjölda annarra viðurkenninga. Hann hefur sent 25 lög í efsta sæti bandaríska kántrívinsældalistans og samið sjálfur 21 þeirra. Lögum hans hefur verið streymt nærri fimm milljörðum sinnum.
Það segir sitt um hversu sérstakt tónleikakvöldið í Eldborg verður að aðeins átta dögum síðar, 26. júní, heldur Paisley tónleika í hinni risastóru O2-höll í London.
Í Eldborg gefst hins vegar sjaldgæft tækifæri til að upplifa þessa heimsstjörnu í óvenjulegri nánd – þar sem aðeins þarf manninn, lögin, sögurnar og gítarinn til að skapa eftirminnilegt kvöld.
Viðburðahaldari
Tónleikur
Miðaverð er sem hér segir
A
20.990 kr.
B
18.990 kr.
C
15.990 kr.
D
12.990 kr.
X
22.990 kr.
Dagskrá
föstudagur 18. júní - 20:00
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn er sérhannaður til tónleikahalds, en hentar einnig vel fyrir ráðstefnur og fyrirlestra.

Hleður
Næstu viðburðir í Hörpu