Klassík, Kór, Ópera, Sígild og samtímatónlist, Tónlist

Verð
4.990 - 13.990 kr
Næsti viðburður
sunnudagur 24. janúar - 17:00
Salur
Eldborg
Óperukórinn í Reykjavík býður til stórtónleika í Eldborg þar sem flutt verður eitt áhrifamesta og stórbrotnasta meistaraverk tónlistarsögunnar – Sálumessa Mozarts, Requiem.
Requiem Mozarts er einstakt tónverk sem sameinar dramatískan kraft, djúpa tilfinningu og óviðjafnanlega fegurð. Tónlistin sveiflast á milli ógnar og vonar, myrkurs og ljóss og hefur snert hjörtu tónlistarunnenda í meira en tvær aldir. Mozart samdi verkið á síðustu mánuðum ævi sinnar, en lést árið 1791 áður en hann náði að ljúka því. Síðan hefur það skipað sérstakan sess meðal áhrifamestu verka klassískrar tónlistar.
Með Óperukórnum í Reykjavík koma fram fjórir af okkar fremstu einsöngvurum:
Þóra Einarsdóttir, sópran Guja Sandholt, mezzósópran Elmar Gilbertsson, tenór Bjarni Thor Kristinsson, bassi Stjórnandi: Aron Axel Cortes
Það er einstakt tækifæri til að upplifa þetta tímalausa meistaraverk í glæsilegri umgjörð Eldborgar í Hörpu. Verið velkomin á tónlistarviðburð sem snertir hjartað og situr lengi í minningunni.
Viðburðahaldari
Óperukórinn í Reykjavík
Miðaverð er sem hér segir
A
11.990 kr.
B
9.990 kr.
C
7.990 kr.
D
4.990 kr.
X
13.990 kr.
Dagskrá
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn er sérhannaður til tónleikahalds, en hentar einnig vel fyrir ráðstefnur og fyrirlestra.

Hleður
Næstu viðburðir í Hörpu