Klassík, Reykjavík Early Music Festival, Sígild og samtímatónlist, Tónlist

Verð
8.900 - 11.900 kr
Næsti viðburður
fimmtudagur 25. mars - 19:00
Salur
Norðurljós
Veraldleg tónlist blómstraði svo að lítið bæri á í Róm skömmu fyrir aldamótin 1700 þrátt fyrir bann Innósentíusar páfa XII. við leiksýningum og óperuflutningi. Í Rómaborg átti kirkjutónlistin að ríkja ein, ofar hverri kröfu. Árið 1690 stofnuðu mótþróagjarnir andans menn Arkadíuakademíuna. Þeir komu saman einu sinni í viku og færðu upp óperur, léku kammertónlist, spiluðu konserta og snöruðu fram sónötum — allt með mikilli leynd. Blokkflautuvirtúósinn Dorothee Oberlinger og hinn framúrskarandi sópranisti Bruno de Sá hlutu mikið lof fyrir hljóðritun sína á óperunni Pólýfemusi eftir Giovanni Bononcini sem gerð var á tónlistarhátíðinni Potsdam Sanssouci árið 2019. Á þessum tónleikum koma þau saman á ný og kafa ofan í undraheima Arkadíuakademíunnar. Flutt verða verk fyrir blokkflautu, sópran og strengi eftir helstu tónskáld sem tengdust akademíunni, til að mynda Alessandro Scarlatti, Giovanni Bononcini, Arcangelo Corelli og Georg Friedrich Händel. Mesti áhrifavaldurinn var Scarlatti. Hann var þeirra hugkvæmastur enda mótar fyrir hljóðfalli hans í tónlist yngri kynslóða tónskálda, ekki síst hjá æskumanninum Händel. Hér verður sögð saga af neðanjarðarhreyfingu listamanna í Róm á bannárum sem hafði áhrif um alla álfuna.
Tónleikarnir eru um 90 mínútur, með hléi.
Viðburðahaldari
Reykjavík Early Music Festival
Miðaverð er sem hér segir
A
11.900 kr.
A
8.900 kr.
A
11.900 kr.
A
8.900 kr.
Dagskrá
fimmtudagur 25. mars - 19:00
Þessi einstaki og fallegi salur á annarri hæð Hörpu hentar vel fyrir tónleika, ráðstefnur, sýningar, árshátíðir og hvers kyns mannamót. Norðurljós er hin fullkomna umgjörð og býður upp á fjölbreytta notkunarmöguleika.

Hleður
Næstu viðburðir í Hörpu