Heiðurstónleikar, Leikhús, Rokk og popp, Tónlist

Verð
6.990 - 19.990 kr
Næsti viðburður
sunnudagur 27. desember - 16:00
Salur
Eldborg
Katrín Halldóra og Vesturport kynna stórtónleika til heiðurs þessari dáðu söngkonu í Eldborgarsal Hörpu þann 27. desember kl. 16:00 og 20:00.
Söng- og leikkonan Katrín Halldóra flytur helstu perlur frá söngferli Ellyar ásamt góðum gestum. Með henni á sviðinu verður Stórhljómsveit og strengjakvartett undir stjórn Guðmundar Óskars Guðmundssonar en Hjörtur Ingvi Jóhannsson hefur gert nýjar útsetningar á lögunum að þessu tilefni.
Gísli Örn og Ólafur Egill verða kynnar og sögumenn tónleikanna og munu þeir rekja feril Ellyjar á lifandi og skemmtilegan hátt.
Hér er því einstakt tækifæri til að heyra lög Ellyjar á ný og minnast söngkonunnar sem ljáði íslenskri dægurtónlist einstaka rödd sína og túlkun.
Tónleikarnir voru fyrst fluttir árið 2025 á 90. afmælisári Ellyar og seldust þá upp á örskömmum tíma. Nú gefst kostur á að upplifa tónlist Ellyar á ný, í endurbættri og aukinni dagskrá og enn veglegri uppsetningu.
Hljómsveitina skipa :
Guðmundur Óskar Guðmundsson.
Hjörtur Ingvi Jóhannsson.
Aron Steinn Ásbjarnarson.
Örn Eldjárn.
Þorvaldur Þór Þorvaldsson.
Kristinn Snær Agnarsson.
Tómas Jónsson.
Ingrid Karlsdóttir.
Pétur Björnsson.
Sigurgeir Agnarsson.
Þórunn Ósk Marínósdóttir
Viðburðahaldari
Vesturport
Miðaverð er sem hér segir
A
15.990 kr.
B
13.990 kr.
C
10.990 kr.
D
8.990 kr.
X
17.990 kr.
E
6.990 kr.
Gull
19.990 kr.
Dagskrá
sunnudagur 27. desember - 16:00
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn er sérhannaður til tónleikahalds, en hentar einnig vel fyrir ráðstefnur og fyrirlestra.

Hleður
Næstu viðburðir í Hörpu