Fjölskyldan, Klassík, Ókeypis, Sígild og samtímatónlist, Tónlist

Salur
Hörpuhorn
Komdu í snú snú! Hörpuhorn breytist í tónlistarleikvöll!
Við bjóðum gestum og gangandi í snú snú á Litlu Seiglu þar sem við fáum að leika okkur, hreyfa okkur og skapa skemmtilega tónlistarupplifun saman.
Öllum er velkomið að taka þátt! Komdu og hoppaðu með okkur, og hlustaðu á tónlistarfólk Seiglu spinna út frá hljóðum og hreyfingum þátttakenda.
Snú snú er í boði:
Merve Ünlü er arkitekt, borgarhönnuður og listamaður frá Tyrklandi með aðsetur í Helsinki. Hún hefur unnið að umfangsmiklum verkefnum á sviði almenningsrýma, byggingarlistar og rannsókna í Finnlandi, Tyrklandi og á Ítalíu. Í starfi sínu beinir hún sjónum að félagslegum víddum borgarhönnunar, með sérstaka áherslu á kynjafræði, inngildingu og pólitík almenningsrýma. Um þessar mundir vinnur hún að verkefninu Cityscapes: A Vision for Universal Urban Enjoyment, sem sameinar myndlist og borgarfræði og nýtur styrks frá Menningarsjóði Finnlands.
Lee Marable er arkitekt og hönnuður með aðsetur í London. Hann rekur hönnunarstofuna Regular Celery og hefur starfað hjá arkitekta- og hönnunarstofum í London, Stokkhólmi og Helsinki. Á árunum 2019-2023 gaf hann út BUM Editions, risograph-prentað tímarit um listir og menningu. Hann hefur sérstakan áhuga á siðfræði borgarhönnunar og notkun almenningsrýma.
Áætluð lengd: 45 mínútur.
–
Hátíðardagskrá Seiglu, upplýsingar um flytjendur og aðra viðburði má finna á www.seiglafestival.com og í hátíðartímaritinu Seiglazine.
Viðburðahaldari
Seigla
Hörpuhorn er glæsilegt opið rými, við glerhjúpinn á annarri hæð, með útsýni yfir miðborgina, hafið og fjöllin. Í Hörpuhorni eru margir möguleikar á útfærslu tónleika fyrir allar tónlistarstefnur.

Hleður
Næstu viðburðir í Hörpu