DagskráDagskráDagskráDagskráDagskráDagskrá
Tónleikar — Ráðstefnur — Fundir — Veislur — Salir og rými — Viðburðahaldarar tónlist
⎯ Tónleikar⎯ Ráðstefnur⎯ Fundir⎯ Veislur⎯ Salir og rými⎯ Viðburðahaldarar tónlist
Um Hörpu — Græn stefna — Styrkir til tónleikahalds — Póstlisti
⎯ Um Hörpu⎯ Græn stefna⎯ Styrkir til tónleikahalds⎯ Póstlisti
Heimsókn í HörpuHeimsókn í HörpuHeimsókn í HörpuHeimsókn í HörpuHeimsókn í HörpuHeimsókn í HörpuBóka fundarherbergiBóka fundarherbergiBóka fundarherbergiBóka fundarherbergiBóka fundarherbergiBóka fundarherbergi
LeitaLeitaLeita
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
  • Harpa

  • Opnunartímar

  • Austurbakka 2, 101 Reykjavík

  • Sími: 528 5000

  • Miðasala: 528 5050

  • harpa@harpa.is

  • Skráning á póstlista

  • Sækja um starf

  • Íbúar

    • Sinfóníuhljómsveit Íslands
    • Stórsveit Reykjavíkur
    • Maxímús Músíkús
  • Fræðsla

    • Persónuverndarstefna
    • Jafnlaunastefna
    • Miðasöluskilmálar
    • Fyrirvari vegna tölvupósts
    • Vafrakökur
  • Vottanir & viðurkenningar

  • Jafnlaunavottun
  • Jafnvægisvogin
  • Svansvottun
  • Tripadvisor viðurkenningar
  • Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
  • Youtube
  • LinkedIn
FacebookInstagramYoutubeLinkedIn
EnglishEnglishEnglish

Klassík, Ókeypis, Sígild og samtímatónlist, Tónlist

Myndefni

Event poster

Orkester Norden á Íslandi

Salur

Eldborg

Norræna ungmennahljómsveitin Orkester Norden heldur tónleika í fyrsta sinn á Íslandi í sumar!

Orkester Norden sem stofnað var til árið 1986 fyrir tilstilli Lionshreyfingarinnar í Svíþjóð er skipuð tónlistarnemendum Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna á aldrinum 15-25 ára. Á hverju ári er haldið námskeið sem lýkur með tónleikum og hafa fjölmargir íslenskir tónlistarmenn tekið þátt í verkefninu í gegnum árin. Efnisskráin í ári er einstaklega metnaðarfull og verður flutt bæði í Hofi á Akureyri og Hörpu í Reykjavík.

Efnisskrá
Franz Schubert: Sinfónía nr. 8 í h-moll ”Ófullgerða sinfónían”
Igor Stravinsky: Pulcinella svíta
hlé
Carl Nielsen: Sinfónísk rapsódía
Ludvig van Beethoven: Sinfónía nr. 6 í F-dúr ”Pastoral-sinfónían"

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis en við værum þakklát fyrir stuðning við verkefnið um verðgildi miða uppá kr. 3.500,-
Styrktareikningur 0544-14-554053
Kt.: 640572-0869
Skýring: Orkester Norden

Orkester Norden er eitt af mörgum norrænum samstarfsverkefnum Lionshreyfingarinnar. Upphafið á sér rætur í Svíþjóð á árunum 1986-1987 þegar þáverandi alþjóðaforseti Lions fól sænskum Lionsfélaga, Lennart Fridén, að finna samnorrænt verkefni fyrir ungt fólk á aldrinum 15-25 ára. Hljómsveitin heldur nú hljómsveitarnámskeið og tónleika á Íslandi í fyrsta skipti undir merkjum Lions á Íslandi!

Orkester Norden er hvert ár skipuð 40-80 hæfileikaríkum ungmennum frá Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum sem eru sérstaklega valin til þátttöku eftir strangt inntökuferli. Átta daga æfingarbúðir eru á Akureyri fyrir tónleikana undir stjórn þekktra norrænna leiðbeinenda. Þar á meðal eru Björg Brjánsdóttir flautuleikari og tónskáld, sem verður leiðbeinandi tréblásaranna og aðstoðarhljómsveitarstjórinn, sem er Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir, en hún lauk námi í hljómsveitarstjórn við Tónlistarháskólann í Ósló nú í vor.

Listrænn stjórnandi er Ilkka Uurtimo, sellóleikari við Sinfóníuhljómsveitina í Lahti, en aðalhljómsveitarstjóri Orkester Norden 2026 er Jan Söderblom. Jan er okkur að góðu kunnur, en hann stjórnaði Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleikum í Eldborg í janúar á þessu ári.

Fjórir ungir íslenskir hljóðfæraleikarar leika með hljómsveitinni að þessu sinni. Sólrún Svava Kjartansdóttir fiðluleikari, Hanna Kristín Stefánsdóttir og Helga Björg Kjartansdóttir víóluleikarar og Karen Jóna Steinarsdóttir flautuleikari.

Með kveðju, Lions á Íslandi og Orkester Norden

Viðburðahaldari

Lions á Íslandi

Eldborg

Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn er sérhannaður til tónleikahalds, en hentar einnig vel fyrir ráðstefnur og fyrirlestra.

a large empty auditorium with red seats and a stage .

Hleður

Næstu viðburðir í Hörpu

Sjá alla viðburði

The Volcano Express

Sýningar á 15 mínútna fresti

Áskriftasala Sinfóníuhljómsveitar Íslands

Tryggðu þér áskriftarkort sinfóníunnar

Heimur íslenskrar tónlistar

Opið alla daga kl. 10:00–20:00

KMK70 ára, starfsárið 2026-2027: Árskort

Árskort Kammermúsíksklúbbsins

Jazzhátíð Reykjavíkur í Hörpu 26. ágúst

26. ágúst 2026, 19:00

How to become Icelandic in 60 minutes

25 sýningar

Jazzhátíð Reykjavíkur í Hörpu 27. ágúst

27. ágúst 2026, 19:00

Jazzhátíð Reykjavíkur í Hörpu 28. ágúst

28. ágúst 2026, 19:00

Klassíkin okkar - Sinfóníuhljómsveit Íslands

28. ágúst 2026, 20:00

Stórtónleikar Ásgeirs Trausta í Eldborg

29. ágúst 2026, 20:00

Ea Fantasia - útgáfutónleikar / Sígildir sunnudagar

30. ágúst 2026, 16:00