Rokk og popp, Tónlist

Verð
5.990 - 16.990 kr
Næsti viðburður
laugardagur 29. ágúst - 20:00
Salur
Eldborg
Ásgeir stígur á svið í Eldborg þann 29. ágúst og býður upp á stórtónleika í tilefni af útgáfu nýjustu plötu sinnar, Julia.
Ásgeir ætlar að fara yfir ferilinn sinn en Ásgeir hefur gefið út yfir 100 lög á íslensku og ensku á síðustu 14 árum. Ásamt því að syngja sín stærstu lög mun hann einnig flytja plötuna Julia og kynna ykkur fyrir nýju efni á væntanlegri plötu á íslensku. Ekki missa af þessari einstöku kvöldstund þar sem fortíð, nútíð og framtíð koma saman!
Julia, sem kom út 14. febrúar 2026, er einlægasta verk Ásgeirs til þessa en í fyrsta sinn samdi hann textana alfarið sjálfur. Útkoman er eitt hans persónulegasta verk með skugga titil persónunnar sem leiðarstef.
Um Ásgeir Það eru að verða liðin nærri fimmtán ár síðan Ásgeir Trausti steig fyrst fram á sjónarsviðið og hefur hann síðan verið í fremstu röð íslenskra tónlistarmanna. Frumraun hans, Dýrð í dauðaþögn (2012), sló í gegn, seldist í yfir 40.000 eintökum og sat í um 400 vikur á Tónlistanum. Platan er í dag ein af söluhæstu plötum Íslandssögunnar. Síðan þá hefur Ásgeir byggt upp sterkan alþjóðlegan feril og haldið tónleika víða um heim. -
Viðburðahaldari
Dauðaþögn
Miðaverð er sem hér segir
A
12.990 kr.
B
9.990 kr.
C
7.990 kr.
D
6.990 kr.
X
14.990 kr.
E
5.990 kr.
Gull
16.990 kr.
Dagskrá
laugardagur 29. ágúst - 20:00
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn er sérhannaður til tónleikahalds, en hentar einnig vel fyrir ráðstefnur og fyrirlestra.

Næstu viðburðir í Hörpu