Sígild og samtímatónlist, Tónlist

Salur
Eldborg
Sir Bryn Tefel, sem er álitinn besti bassa-baritón heims, heldur áfram að koma fram í frægustu óperuhúsum og tónlistarhöllum um heiminn. Nú kemur hann í Hörpu eina kvöldstund þar sem áheyrendum gefst kostur á að njóta einstakra hæfileika hans. Bryn er þekktur um heim allan fyrir kraftmikla söngrödd sína og magnaða nærveru og er sannarlega meistari á sínu sviði.
Þessi einsöngstónleikar bjóða upp á einstakt tækifæri til að heyra Bryn syngja í návígi og flytja tónlist sem honum er mjög hugleikin. Allt frá velskum þjóðlögum sem endurspegla heimaslóðir hans og þekktum lögum úr söngleikjum, yfir í verk eftir Schubert, Debussy, Wagner og Schumann – hin stórkostlega rödd hans mun fylla Eldborgarsalinn og njóta sín til fulls.
Með Bryn á sviðinu verður píanóleikarinn þekkti Annabel Thwaite, og hörpuleikarinn Hannah Stone, sem er eiginkona hans og samstarfsaðili til fjölda ára. Hún var m.a. einka-hörpuleikari Karls Bretakonungs í fjögur ár. Saman hverfa þau aftur til upprunans og þess sem mestu máli skiptir: fagurrar tónlistar, fluttrar af einlægni og sál.
Það er sjaldgæft að sjá listamann sem er jafnvígur á svo marga ólíka stíl, og enn sjaldgæfara að upplifa það allt á einum tónleikum. Þetta er einstakt tækifæri til að njóta heildarmyndar af Bryn Terfel – sagnamanninum, skemmtikraftinum og einum fremsta óperusöngvara heims í dag.
,,Besti bassa-baritón söngvari heims." Katherine Jenkins, The Sunday Times, UK
Viðburðahaldari
Jamboree Entertainment
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn er sérhannaður til tónleikahalds, en hentar einnig vel fyrir ráðstefnur og fyrirlestra.

Hleður
Næstu viðburðir í Hörpu