Rokk og popp, Tónlist

Salur
Eldborg
Stefán fagnar stórafmæli á þessu ári, sem einnig markar tímamót á viðburðarríkum ferli, sem spannar fjörutíu vetur. Blásið er til tónleika í Eldborg, hvar farið verður yfir ferilinn til þessa, með atfylgi fullveðja hljómsveitar, blásaraflokks og fleiri ómissandi aðstoðarkokka. Óvæntir og væntir leynigestir stíga á stokk og setja svip sinn á kvöldið — sem gæti orðið sögulegt.
Miðasala hefst þann 10. mars kl. 10.
Viðburðahaldari
Sálheimar
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn er sérhannaður til tónleikahalds, en hentar einnig vel fyrir ráðstefnur og fyrirlestra.

Hleður
Næstu viðburðir í Hörpu