DagskráDagskráDagskráDagskráDagskráDagskrá
Tónleikar — Ráðstefnur — Fundir — Veislur — Salir og rými — Viðburðahaldarar tónlist
⎯ Tónleikar⎯ Ráðstefnur⎯ Fundir⎯ Veislur⎯ Salir og rými⎯ Viðburðahaldarar tónlist
Um Hörpu — Græn stefna — Styrkir til tónleikahalds — Póstlisti
⎯ Um Hörpu⎯ Græn stefna⎯ Styrkir til tónleikahalds⎯ Póstlisti
Heimsókn í HörpuHeimsókn í HörpuHeimsókn í HörpuHeimsókn í HörpuHeimsókn í HörpuHeimsókn í HörpuBóka fundarherbergiBóka fundarherbergiBóka fundarherbergiBóka fundarherbergiBóka fundarherbergiBóka fundarherbergi
LeitaLeitaLeitaEnglishEnglishEnglish
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
  • Harpa

  • Opnunartímar

  • Austurbakka 2, 101 Reykjavík

  • Sími: 528 5000

  • Miðasala: 528 5050

  • harpa@harpa.is

  • Skráning á póstlista

  • Sækja um starf

  • Íbúar

    • Sinfóníuhljómsveit Íslands
    • Stórsveit Reykjavíkur
    • Maxímús Músíkús
  • Fræðsla

    • Persónuverndarstefna
    • Jafnlaunastefna
    • Miðasöluskilmálar
    • Fyrirvari vegna tölvupósts
    • Vafrakökur
  • Vottanir & viðurkenningar

  • Jafnlaunavottun
  • Jafnvægisvogin
  • Svansvottun
  • Tripadvisor viðurkenningar
  • Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
  • Youtube
  • LinkedIn
FacebookInstagramYoutubeLinkedIn

Kammertónlist, Rising Stars, Sígild og samtímatónlist, Tónlist

Myndefni

Event poster

ECHO Rising Stars í Hörpu | Hátíðarpassi

Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða

Verð

10.000 kr

Næsti viðburður

laugardagur 9. maí - 17:00

Salur

Norðurljós

Tónleikaröðin ECHO Rising Stars fer fram í Norðurljósum í Hörpu, helgina 9. - 10. maí 2026 þar sem ungt og framúrskarandi tónlistarfólk, hvaðanæva að, býður upp á litríka og einstaklega spennandi efnisskrár sem saman spanna margar aldir og álfur. Tónleikarnir eru fernir og fara fram klukkan 17 og klukkan 20, laugardag og sunnudag.

Portúgalski Maat-saxófónkvartettinn flytur kraftmikil baráttulög og tónlist sem hverfist um jafnrétti og frelsi. Píanóleikarinn Giorgi Gigashvili frá Georgíu leikur undurfögur og hrífandi einleiksverk fyrir píanó, sígild og splukuný. Austurríski sellóleikarinn Valerie Fritz fléttar saman afar fjölbreyttum einleiksverkum fyrir selló þar sem hreyfingar, lýsing, söngur, myndlist og dans koma við sögu og sópransöngkonan Álfheiður Erla Guðmundsdóttir ásamt píanóleikaranum Kunal Lahiry býður hlustendum í magnað ferðalag sem er innblásið af ljóði Sylviu Plath, Lafði Lazarus!

Á öllum tónleikunum hljómar glæný tónlist, samin sérstaklega fyrir flytjendurna en tónskáldin eru Aleksandra Vrebalov, Jennifer Walshe, María Huld Markan Sigfúsdóttir og Natalie Beridze.

Hátíðarpassi á ferna tónleika tryggir aðgang á alla tónleika hátíðina og kostar aðeins 10.000 krónur.

ECHO RISING STARS Í HÖRPU
9. - 10. MAÍ 2026 Í NORÐURLJÓSUM


Laugardagur, 9. maí kl. 17
Maat saxófónkvartettinn: Blackbird

Laugardagur, 9. maí kl. 20
Giorgi Gigashvili, píanó

Sunnudagur, 10. maí kl. 17
Valérie Fritz, selló: Learn to unlearn

Sunnudagur, 10. maí kl. 20
Álfheiður Erla Guðmundsdóttir, sópran og Kunal Lahiry, píanó: Lady Lazarus

ECHO Rising Stars er verkefni á vegum ECHO, Samtaka evrópskra tónleikahúsa. ECHO Rising Stars-verkefnið er margþætt. Það gefur ungu og framúrskarandi tónlistarfólki færi á að koma fram í frábærum tónlistarhúsum víðs vegar um Evrópu og veitir jafnframt ferskum straumum inn í tónlistarlíf og dagskrá viðkomandi tónlistarhúsa. Verkefnið styður við nýsköpun en þeir hópar og einstaklingar sem valdir eru til þátttöku í ECHO Rising Stars panta nýtt tónverk sem flutt er á öllum tónleikum viðkomandi. Samhliða tónleikahaldi tekur tónlistarfólkið þátt í samfélagslegum tónlistarverkefnum sem lúta að miðlun, kennslu og/eða viðburðahaldi, gjarnan utan hins hefðbundna tónleikasalar en verkefnin eru ákveðin í samstarfi við viðkomandi tónlistarhús.

Um 110 tónleikar fara árlega fram á vegum ECHO Rising Stars. Á meðal tónlistarfólks sem komið hefur fram undir merkjum þess eru fiðluleikararnir Patricia Kopatchinskaja, Renaud Capuçon og Janine Jansen, píanóleikararnir Khatia Buniatishvili og Igor Levit, sellóleikarinn Kian Soltani og strengjakvartettarnir Quarteto Casals og Belcea Quartet.

Viðburðahaldari

Harpa

Miðaverð er sem hér segir

A

10.000 kr.

Dagskrá

laugardagur 9. maí - 17:00

Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða

Norðurljós

Þessi einstaki og fallegi salur á annarri hæð Hörpu hentar vel fyrir tónleika, ráðstefnur, sýningar, árshátíðir og hvers kyns mannamót. Norðurljós er hin fullkomna umgjörð og býður upp á fjölbreytta notkunarmöguleika.

a large auditorium filled with rows of chairs and purple lights .

Næstu viðburðir í Hörpu

Sjá alla viðburði

The Volcano Express

Sýningar alla daga á 15 mínútna fresti

Engan asa, Einar Áskell

3 sýningar

How to become Icelandic in 60 minutes

30 sýningar

PINK FLOYD í 60 ár

21. mars 2026, 21:00

Gleym mér ei | Hádegistónleikar söngdeildar LHÍ í Hörpuhorni

25. mars 2026, 12:00

Margrét Eir / Söngleikja jazz - Múlinn Jazzklúbbur

25. mars 2026, 20:00

Íslensku vefverðlaunin

26. mars 2026, 18:00

The Definitive Rat Pack

27. mars 2026, 20:00