Börn og Fjölskyldan, Sígild og samtímatónlist, Sígildir sunnudagar, Tónlist

Verð
4.000 - 4.500 kr
Næsti viðburður
sunnudagur 24. maí - 16:00
Salur
Norðurljós
Sígildir sunnudagar: Barnaómur í 60 ár! – Kór Öldutúnsskóla
Kór Öldutúnsskóla í Hafnarfirði mun á þessum tónleikum fagna 60 ára samfelldu söngstarfi þar sem farið verður yfir sögu kórsins í tónum og tali.
Kór Öldutúnsskóla er elsti starfandi barnakór landsins. Hann var stofnaður 22. nóvember 1965, klukkan hálf fimm(!), af Agli Friðleifssyni sem var mikill frumkvöðull í barnakórastarfi landsins, bæði sem kórstjóri og sem kennari annarra tónmenntakennara og kórstjóra. Árið 2005 tók núverandi kórstjóri, Brynhildur Auðbjargardóttir, við tónkvíslinni en hún söng um árabil í kórnum hjá Agli. Segja má að kórinn sé orðinn stofnun í Hafnarfirði, en þúsundir barna og unglinga hafa sungið og starfað með honum frá upphafi. Mörg þeirra hafa síðar gert tónlist að atvinnu.
Kórinn hefur sungið víða um heim, komið fram í sjónvarpi og útvarpi og sungið inn á fjöldann allan af geisladiskum. Hann hefur einnig unnið með tónlistarfólki úr fjölbreyttri flóru íslensks tónlistarlífs og hefur meðal annars sungið nokkrum sinnum með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Þá söng kórinn inn á Vísnaplöturnar sem nutu mikilla vinsælda og gera enn.
Efnisskrá og framkoma
Efnisskrá afmælistónleikanna spannar uppáhaldssönglög núverandi kórfélaga og kórtónlist úr ýmsum áttum úr sögu kórsins. Frumflutt verður nýtt kórverk eftir Finn Karlsson.
Fram koma á tónleikunum, auk kóra skólans og kóra fyrrum kórfélaga:
• Björg Birgisdóttir, söngkona og söngkennari
• Erla Jónatansdóttir, söngkona og tónmenntakennari
• Erla Mist Magnúsdóttir, söngkona og tónmenntakennari
• Guðrún Árný Karlsdóttir, söngkona, lagahöfundur, tónmenntakennari og kórstjóri
• Hanna Björk Guðjónsdóttir, söngkona og söngkennari
• Ívar Helgason, söngvari, leikari og söngkennari (og faðir kórbarns í Öldutúni)
• Margrét Eir Hönnudóttir, söngkona, leikari og kórstjóri
• Pálína Dögg Helgadóttir, kórsöngvari og móðir þriggja kórbarna í Öldutúni
• Sigríður Tinna Bjarnadóttir, söngnemi í djasssöng
• Telma Hlín Helgadóttir, kórsöngvari
• Ingunn Hildur Hauksdóttir, píanóleikari og píanókennari
Meðleikarar á píanó: Agnar Már Magnússon og Ingunn Hildur Hauksdóttir ásamt Guðrúnu Árnýju Karlsdóttur.
Stjórnendur: Brynhildur Auðbjargardóttir ásamt Agli Friðleifssyni og Björgu Birgisdóttur.
Almennt miðaverð er kr. 4000, en eldri borgurum býðst að kaupa miðann á kr. 3500 í miðasölu Hörpu. 12 ára og yngri greiða engan aðgangseyri.
Áætluð lengd tónleikanna er 1 klukkustund og 45 mínútur, með hléi.
Viðburðahaldari
Kór Öldutúnsskóla
Miðaverð er sem hér segir
A
4.000 kr.
A
4.500 kr.
Dagskrá
Þessi einstaki og fallegi salur á annarri hæð Hörpu hentar vel fyrir tónleika, ráðstefnur, sýningar, árshátíðir og hvers kyns mannamót. Norðurljós er hin fullkomna umgjörð og býður upp á fjölbreytta notkunarmöguleika.

Næstu viðburðir í Hörpu