Börn og Fjölskyldan, Fjölskyldudagskrá Hörpu, Ókeypis viðburður, Sígild og samtímatónlist, Tónlist

Verð
0 kr
Næsti viðburður
sunnudagur 12. apríl - 14:00
Salur
Kaldalón
Krakka-Kammermúsíkklúbburinn
12. apríl kl. 14:00–15:00
Kaldalón, Harpa
Aldur: 7–15 ára
Tungumál: Íslenska (auðvelt að njóta óháð tungumáli)
Aðgangur: Ókeypis – miða má nálgast frá 6. apríl á harpa.is
Fjölskyldudagskrá Hörpu, í samstarfi við Kammermúsíkklúbbinn og Menntaskóla í tónlist, býður upp á notalega kammertónleika í Kaldalóni þar sem ungir og efnilegir hljóðfæraleikarar stíga á svið og flytja fjölbreytta og aðgengilega efnisskrá.
Áheyrendur fá jafnframt innsýn í heim kammertónlistarinnar með fróðleik um hljóðfærin, tónskáldin og tónlistarstílinn – með það að markmiði að dýpka skilning og auka áhuga ungra hlustenda.
Efnisskrá:
M. Ravel:
Strengjakvartett í F-dúr, 2. kafli: Assez vif - Tres rythmé
Björney Aronsdóttir, fiðla
Steinunn Dís Öfjörð Sævarsdóttir, fiðla
Haraldur Áss Liljuson, víóla
Urður Eir Baldursdóttir, selló
F. Mendelssohn:
Píanótríó í d-moll op. 49, 1. kafli: Molto allegro agitato
Sveindís Eir Steinunnardóttir, fiðla
Baldur Þórarinsson, selló
Sól Björnsdóttir, píanó
A. Dvorak:
Terzetto í C-dúr, 1.kafli: Allegro ma non troppo
Rozalia Mietus, fiðla
Hugrún Birna Hjaltadóttir, fiðla
Arndís Ólafía Snorradóttir, víóla
D. Shostakovich:
Píanótríó í e-moll op.67, 4. kafli: Allegretto-Adagio
Þórdís Emiliía Aronsdóttir, fiðla
Anton Ragnar Vigfússon, selló
Jakob Piotr Grybos, píanó
Allir flytjendur eru nemendur við Menntaskóla í tónlist.
Viðburðahaldari
Harpa
Þessi viðburður er ókeypis
Dagskrá
Kaldalón er salur staðsettur á fyrstu hæð Hörpu, norðan megin í húsinu. Hann hentar mjög vel fyrir allar tegundir tónleika, leiksýningar, ráðstefnur, fundi og listviðburði.

Næstu viðburðir í Hörpu